Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sjötíu ár á sjó og sextíu ár í útgerð

Read Full Article →

200 mílur | Morgunblaðið | 10.7.2026 | 20:30 Sjötíu ár á sjó og sextíu ár í útgerð Hafrún HU og Sigurjón hafa verið samferða stóran hluta af ævi beggja en bæði skip og maður eru 70 ára. Fljótlega eftir sjómannadag fer hún á dragnótaveiðar í Húnaflóa. Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Ólafur Bernódusson Skagaströnd Setja bókamerki Tengdar fréttir Fólkið í sjávarútvegi Sjötugur og gerir út á eikarbát Grindavíkurhöfn nær sér á strik Hálf öld á sjó og komið gott Börnin fegra fiskvinnsluna Breytingar hjá bæjarútgerðinni » Fleiri tengdar fréttir Sigurjón Guðbjartsson útgerðar- og athafnamaður, sem er á 85. aldursári, keypti nýlega stærstan part af húsnæði Rækjuvinnslunnar hf. sálugu. Hlutinn sem Sigurjón keypti af húsinu er um 1.000 fermetrar en þar voru áður vinnslusalur, skrifstofa og kaffistofa og fleira. Hinn hluti hússins, um 600 fermetrar, er í eigu verktakafyrirtækisins Verklausnar ehf. „Það verður að dubba húsið svolítið upp, það er búið að vera í skammarlegri niðurníðslu í mörg ár,“ segir Sigurjón. „Ég er einn eftir af okkur körlunum sem létum byggja þetta hús kringum 1975 en hér var unnin rækja á sólarhringsvöktum í mörg ár. Þá var fyrirtækið í allra fremstu röð í heiminum í vinnslu á rækju. Ég ætla bara að hressa upp á það og svo sjáum við til hvað ég geri með það.“ Fjórir bátar þegar mest var Sigurjón fæddist í Austmannsdal við Arnarfjörð og ólst þar upp fyrstu sex árin. Þá flutti fjölskyldan að Bakka í Bakkadal og þar ólst hann upp fram á unglingsár. „Pabbi átti bæði skektu og þriggja tonna trillu. Á skektunni rerum við Árni bróðir fram á fjörðinn, smá pollar, til að draga fisk í soðið. Ég man líka vel eftir Gísla gamla á Uppsölum, sem Ómar Ragnarsson gerði frægan. Pabbi var nefnilega stundum að koma til hans vörum úr kaupstaðnum og aðstoða hann við hitt og þetta. Þá kannaðist ég líka vel við listamanninn með barnshjartað, Samúel Jónsson í Selárdal. Ég fékk að skoða listaverkin hans þegar ég var fermdur í Selárdalskirkju 1955 því hann bauð öllum kirkjugestum á sýningu. Því miður hafa mörg af verkunum hans orðið ónýt eða týnst, sem er leiðinlegt því karlinn gerði margt flott.“ Eftir nokkurn þvæling flutti fjölskyldan til Skagastrandar 1962 og hefur Sigurjón búið hér síðan. Hér fann hann eiginkonu sína Hrafnhildi Jóhannsdóttur og eignaðist með henni tvö börn, Katrínu Bryndísi hárgreiðslumeistara og Jóhann Guðbjart skipstjóra. Sigurjón hefur sjaldan setið auðum höndum því gegnum tíðina hefur hann átt og gert út fjölda báta, lengi vel í félagi við Árna bróður sinn. „Þegar mest var gerðum við út fjóra báta í einu sem við áttum auðvitað alla,“ rifjar Sigurjón upp. Í dag á Sigurjón tvo báta, dragnótabátinn Hafrúnu HU 12 og Ölduna HU 112, sem er tíu tonna plastbátur. Feðgarnir Sigurjón Guðbjartssoon og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson gerðu hlé á málningarundirbúningi fyrir myndatöku. Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson „Hafrúnin varð 70 ára núna í febrúar, það er að segja skrokkurinn á henni. Ég er tvisvar búinn að skipta um vélar í henni og árið 1995 var allt endurnýjað í henni eftir að hún sökk í höfninni. Allt rafkerfi, vélar og innréttingar endurnýjaðar og svo settum við nýjan hvalbak og lengdum hana ári seinna. Þannig að Hafrúnin er svolítið eins og karlinn sagði um pípuna sína: Ég hef átt þessa pípu í tuttugu ár og bara sjö sinnum skipt um munnstykki og fimm sinnum um haus,“ segir Sigurjón og hlær. Tvisvar lent í lífsháska Sigurjón á ákaflega farsælan 70 ára langan sjómannsferil og þar af 60 ár sem útgerðarmaður og skipstjóri á eigin bátum. Allir hafa þeir átt heimahöfn á Skagaströnd og verið gerðir út þaðan „Ég byrjaði til sjós fimmtán ára og ég held ég hafi komið nálægt því að veiða allar tegundir sem veiddar eru hér við land, á þessum árum mínum í útgerð, nema loðnu.“ Tvisvar hefur Sigurjón lent í háska á bátum sem hann var á. Í fyrra skiptið var hann háseti á 180 tonna síldarbáti frá Vestmannaeyjum, Sigurði Pétri. Þeir voru með slatta af síld í lestinni og lentu í brælu. Allt í einu lagðist báturinn á hliðina og rétti sig ekki aftur. Hallinn var svo mikill að sjórinn flaut upp á lúgu, sem var sem betur fer vel skálkuð. Auðséð var að skilrúmin í lestinni höfðu brotnað og farmurinn allur kominn út í aðra síðuna. Karlarnir voru sendir niður í lest til að moka síldinni til svo að Sigurður næði að rétta sig af. Nótabátar héngu í davíðum á bæði borð en hallinn var svo mikill að báturinn, sem hallaði á, settist á sjóinn í sumum veltunum. „Ég var settur í að stýra því ég var meiddur á annarri hendinni og gat ekki mokað. Ég reyndi af bestu getu að stýra eins vel og hægt var í brælunni því ekkert mátti út af bregða. Ef nótabáturinn hefði fyllst af sjó hefði sá aukni þungi farið með okkur yfir um. Og ef Sigurður hefði oltið alveg yfir hefði ekki þurft að spyrja um mannskapinn lokaðan niðri í lest. Þess vegna setti skipstjórinn tvo menn á davíðuna með axir til að höggva vírmanilluna ef það gerðist. Smátt og smátt rétti hann sig við og við komumst til Seyðisfjarðar og lönduðum þar. Til gamans má segja frá því að Sigurður Pétur var seinna skírður Garðar og stendur nú uppi í fjöru í Skápadal og dregur að sér ferðamenn.“ Á hliðinni með mastrið í sjó Seinni háskinn sem hann lenti í var löngu síðar eða árið 1973. Þá var hann á eigin bát, Guðjóni Árnasyni sem var 18 tonn. Sigurjón gerði hann út á rækju, sem þá var mest veidd inni á Hrútafirði. Bátarnir lönduðu gjarnan á Hvammstanga, þaðan sem rækjan var svo flutt á bílum í vinnsluna á Skagaströnd. Sigurjón á kunnugum slóðum um borð í Hafrúninni. Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson „Það voru einhver ókunn hljóð í gírnum svo að ég ákvað að sigla bara heim og láta verkstæðiskarlana kíkja á hann fyrir mig. Það var bræluskítur inni á Hrútafirðinum en þegar við komum út fyrir Vatnsnesið var hann mun verri þar og hávaðarok, 11-12 vindstig. Það skipti engum togum að í einni vindhviðunni og krappri öldu leggst Guðjón á hliðina, alveg á hliðina, þannig að sjórinn flæddi inn um hálfopinn gluggann bakborðsmegin. Árni bróðir var hjá mér þarna í stýrishúsinu. Ég rak olíugjöfina í botn og stýrið alveg í borð og bað Árna að halda honum svona. Svo skrönglaðist ég, með annan fótinn á gólfinu og hinn á brúarveggnum, aftur í bestikkið og kallaði í nærstaddan bát og sagði að við værum á hliðinni með mastrið í sjó. Um leið og ég sleppti síðasta orðinu vorum við búnir að fara hálfhring og þá rétti Guðjón sig við með hjálp vindsins. Það var auðvitað allt á tjá og tundri um borð, við misstum trollið útbyrðis en gátum með harmkvælum náð því inn aftur og rétt bátinn alveg af. Þá var svo bara að halda áfram siglingunni heim.“ Þegar þeir höfðu siglt dálitla stund tók Sigurjón eftir einhverju flökti frammi í lúkarnum. Hann skaust fram í og þá hafði kabyssan hent af sér pottunum og öllum hringjunum við veltuna. Eldurinn stóð því upp úr henni en sem betur fór hafði ekki kviknað í neinu. „Við komumst klakklaust heim en daginn eftir, þegar ég var að færa Guðjón til í höfninni, hrundi gírinn. Ég býð ekki í það ef hann hefði farið þegar ég gaf allt í botn í veltunni.“ Tónelskur kóramaður Sigurjón er eins og að ofan kemur fram að verða 85 ára gamall. Aldurinn skiptir hann engu máli því hann vinnur alla daga nú eins og hann hefur alla tíð gert. Hann hætti þó fyrir nokkrum árum að vera á sjó en sonur hans, Jóhann Guðbjartur, er tekinn við stýrinu um borð. Sigurjón er tónelskur og hefur sungið tenór í kirkjukórnum í áratugi. „Ég var að hugsa um að hætta í kórnum í vetur þegar æfingarnar voru fluttar af kvöldinu til klukkan fimm, því það slítur svo sundur vinnudaginn hjá manni, en svo tímdi ég því ekki því ég hef gaman af að syngja og svo er félagsskapurinn frábær,“ segir þessi sístarfandi athafnamaður að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Fólkið í sjávarútvegi Sjötugur og gerir út á eikarbát Grindavíkurhöfn nær sér á strik Hálf öld á sjó og komið gott Börnin fegra fiskvinnsluna Breytingar hjá bæjarútgerðinni » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Myndband: Sigldu fyrir látinn skipstjóra Bandero yfirgefur Ísland Hefur ekki trú á því að undanþágur bjóðist Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann „Besti bitinn“ sló í gegn í sumarbúðum fatlaðra Stefna að sölu vistfisks innan fimm ára Andlát: Kristinn V. Jóhannsson Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Lagt af stað í makrílleiðangur Þrjú blá skip saman við landfestar Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Stefna að sölu vistfisks innan fimm ára Andlát: Kristinn V. Jóhannsson Lagt af stað í makrílleiðangur Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Línuskipin moka inn keilunni Þrjú blá skip saman við landfestar Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Þór yfirgefur Bandero: Erum með gott auga á skipinu Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Myndband: Sigldu fyrir látinn skipstjóra Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg „Grafalvarlegt mál“ Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Andlát: Kristinn V. Jóhannsson Reyna aftur að eltast við hvalveiðibátana Þór yfirgefur Bandero: Erum með gott auga á skipinu Ellefta langreyðurin veidd Fleira áhugavert Inga segir fréttir af drykkju sinni stórlega ýktar Býður ul

Share this article