- What: Tuberculosis cases in Iceland are low, with no current epidemic.
- Impact: Increased screening and more accurate testing methods are being used, leading to the detection of more cases of latent tuberculosis.
Tíðni berkla er lág á Íslandi. Til Landlæknis ber að tilkynna um berklaveiki, sem sagt þá sem veikjast – ekki þá sem greinast með berklasmit. Berklasmit þýðir að fólk hefur komist í snertingu við berklabakteríuna en ónæmiskerfið heldur henni í skefjum, fólk er því einkennalaust og getur ekki smitað aðra. „Það er bara lítið brot af fólki sem verður berklaveikt í kjölfar berklasmits, það er yfirleitt þá ef ónæmiskerfið er bælt af einhverjum ástæðum,“ segir Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir. „Þannig þetta er ekki áhyggjuefni, það er enginn faraldur í gangi hér af berklum. Það hafa verið víðtækari skimanir og meira notað af nýju prófi, sem er blóðprufa sem er næmari en húðprófið sem var mest notað áður. Þannig að það er líklega verið að greina aðeins fleiri, já,“ bætir hún við. Samkvæmt nýjustu tölum landlæknisembættisins sem eru frá 2024 greindust átta með berklaveiki það ár, færri en árin 2023 og 22 þegar þau voru sextán og sautján. Smitin hafa ekki farið yfir 20 síðan 2020. Meirihluti þeirra sem fá berkla eru erlendir ríkisborgarar. „Það koma smit sem eru innlend en flest smit koma að utan, annaðhvort fólk sem hefur verið hér lengi og hefur verið smitað og ekki vitað af því, svo breytist kannski heilsufar þeirra og þau verða berklaveik eða fólk kemur með þetta eftir dvalir erlendis.“ Ekki tilefni fyrir skimun meðal almennings Talið er að aðeins 10% ómeðhöndlaðra sem smitast fái virka berklaveiki síðar á ævinni. Helstu einkenni berklaveiki eru langvarandi hósti, hiti, lystarleysi og brjóstverkur eða mæði. „Það er ekki nein hætta fyrir almenning að berklar smiti og ég tel ekki ástæðu til að vera með skimun úti í samfélaginu,“ segir Guðrún. Sóttvarnalæknir segir ekki ástæðu til að skima almennt fyrir berklum hér á landi en það gæti verið að það þyrfti að skima heilbrigðisstarfsfólk reglulega. Fleiri smit undanfarið séu ekki áhyggjuefni. Undanfarið hafa greinst einkennalaus smit meðal heilbrigðisstarfsfólks, bæði hjá heilsugæslunni og á Landspítala. Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sagði í fréttum RÚV í gær að það gæti þurft að skima alla framlínustarfsmenn í kjölfarið. „Heilbrigðisstofnanir meta það og mér finnst eðlilegt að þær geri það, hverja þarf að skima hjá sér ef það hefur orðið útsetning. Flestar skimanir hafa verið í kringum rakningar, eins hafa heilbrigðisstofnanir skimað fólk þegar það hefur störf. En ég veit ekki til þess að það séu reglubundnar skimanir meðal heilbrigðisstofnana en það gæti vel verið að það ætti að vera og það er eitthvað sem við getum skoðað betur með þeim.“