Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Margir bíða með að sýna á spilin

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 9.7.2026 | 14:57 Margir bíða með að sýna á spilin Fánar Evrópusambandsins blakta við höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar ESB í Brussel. mbl.is/Sibba Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Skipti úr já-i í nei Innleiða þarf allt reglusafn ESB Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Ný skýrsla um stöðu Íslands birt á vef Áfram Ísland Ræða Ólafs Ragnars komin á Spotify » Fleiri tengdar fréttir Nú þegar um 50 dagar eru til þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við ESB, hinn 29. ágúst, eru ýmis samtök að undirbúa fundi um atkvæðagreiðsluna. Af því tilefni kannaði Morgunblaðið hvað samtökin hafa skipulagt. Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, er þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins. Haraldur Ólafsson formaður Heimssýnar segir málin í skoðun, það sé ekkert meira að segja sem stendur, en meðlimir í Heimssýn hafa látið til sín taka í umræðunni. Miðstöð í Garðastræti Evrópuhreyfingin hefur líka verið áberandi í umræðunni. Tilgangur félagsins er að vinna að því að fram fari aðildarviðræður við Evrópusambandið og að efla umræður og fræðslu um Evrópu- og alþjóðamál. Snærós Sindradóttir framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar segir að samtökin muni opna kosningamiðstöð í Garðastræti 6 í Reykjavík. Nákvæm tímasetning liggi ekki fyrir en það verði eftir verslunarmannahelgi. Hvað varðar einstaka viðburði þá liggi dagsetningar ekki fyrir. Efnt verði til kosningavöku að kvöldi laugardagsins 29. ágúst. Sá fyrsti í Hofi Hreyfingin SJÁ er samsafn fólks sem hyggst kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst til að sjá hvernig aðildarsamningur við ESB gæti litið út. Stofnfundur SJÁ var haldinn á Kjarvalsstöðum 18. júní. Berglind Guðmundsdóttir formaður SJÁ segir SJÁ munu standa fyrir viðburðum í öllum landshlutum í ágúst. „Fyrsti viðburðurinn verður haldinn í byrjun ágúst í Hofi á Akureyri og í framhaldinu verða viðburðir í Reykjanesbæ, Árborg, Akranesi, Egilsstöðum, Ísafirði og á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið er að hitta fólk, eiga góð samtöl, svara spurningum og skapa vettvang fyrir upplýsta umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Nánari upplýsingar um viðburðina verða birtar þegar nær dregur. Við höfum öflugt net sjálfboðaliða um allt land sem tekur þátt í skipulagningu og framkvæmd viðburðanna. Dagskráin verður kynnt í áföngum og við erum jafnframt opin fyrir því að bæta við viðburðum þar sem áhugi og tækifæri skapast. Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að skipuleggja viðburði í sínu nærumhverfi til að skrá sig í SJÁ, á jatiladsja.is. Við viljum ná til fólks um allt land og skapa sem flest tækifæri til samtals,“ segir Berglind. Ný hreyfing, Áfram Ísland, kom svo fram á sjónarsviðið síðastliðinn mánudag en hátt í þúsund manns komu saman á stofnfund hennar í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll, eins og rakið var í Morgunblaðinu í fyrradag. Andri Steinn Hilmarsson, einn fulltrúa Áfram Ísland, segir hreyfinguna áforma fleiri fundi og viðburði. „Næsti fundur okkar verður á Akureyri um miðjan júlímánuð en hann verður auglýstur á næstu dögum,“ segir Andri Steinn. Innan Háskóla Íslands fara reglulega fram fundir um stöðu Íslands í alþjóðamálum. Því var kannað hvort efnt yrði til viðburða vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Opið fyrir sérfræðinga Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, segir málið í skoðun. „Við höfum ekki í hyggju að efna til viðburða af þessu tilefni en munum skoða málið ef sérfræðingar leita til okkar, til dæmis innan háskólans eða samstarfsaðilar sem myndu vilja standa fyrir viðburðum,“ segir Pia. Má í þessu efni rifja upp að utanríkisráðuneytið hefur verið meðal samstarfsaðila Alþjóðamálastofnunar í gegnum tíðina. Hrefna Friðriksdóttir, deildarforseti lagadeildar Háskóla Íslands, segir algengt að fræðafólk á einstaka réttarsviðum efni til viðburða. Hún rifjar upp að efnt var til viðburðar síðastliðið vor um stjórnarskrána og þörf á stjórnarskrárbreytingum vegna mögulegrar aðildar að Evrópusambandinu. Þá sé Lagastofnun, rannsóknarstofnun lagadeildar, að vinna ákveðin verkefni í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna. Hugsanlega verði efnt til fleiri viðburða af þessu tilefni síðar. Ekkert ákveðið Dr. Gunnar Þór Pétursson, deildarforseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík, segir málin í skoðun. „Við höfum ekki ákveðið neitt eins og sakir standa,“ segir Gunnar Þór. Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands, segir stofnunina ekki hafa neitt á döfinni varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna. Hann rifjar upp að stofnunin hafi haldið almennan umræðufund með Félagi stjórnmálafræðinga 16. apríl um fyrirbærið þjóðaratkvæðagreiðslu. Svanhildur Þorvaldsdóttir, formaður Félags stjórnmálafræðinga á Íslandi, hafi þá verið fundarstjóri. Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál, RSE, efndi til málstofu um ESB í Reykjavík á dögunum í samstarfi við austurrísku hugveituna Austrian Economics Center, sem kennd er við austurríska hagfræðiskólann. Yfirskrift málþingsins var Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? en sagt var frá því í Morgunblaðinu 16. maí. Ragnar Árnason, formaður rannsóknaráðs RSE, segir ekkert ákveðið um fleiri viðburði. „Það er ekkert sérstakt ákveðið af hálfu RSE, en nokkur atriði í bígerð,“ segir Ragnar. Áforma fund í Hörpu Komið hefur fram að félagið Paradigm hyggst efna til rökræðna um ESB-aðild í Hörpu í tilefni af fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Stefnt hefur verið að því að viðburðurinn fari fram helgina 14. til 16. ágúst, eða um hálfum mánuði fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Guðlaugur Þór Þórðarson fyrrverandi utanríkisráðherra hefur boðað þátttöku en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, hafa afþakkað boð á fundinn. Gunnlaugur Jónsson forsvarsmaður Paradigm segir framhaldið í skoðun. „Hugsanlega mun viðburðurinn taka á sig annað form en upphaflega var ætlað. Við erum að íhuga valkostina,“ segir Gunnlaugur. Virkja unga fólkið Óðinn Freyr Baldursson, formaður Ungra Evrópusinna, segir þá hafa margt á prjónunum. „Fram að kosningum er markmið okkar hjá Ungum Evrópusinnum að veita ungu fólki allar helstu upplýsingar varðandi atkvæðagreiðsluna 29. ágúst og Evrópusambandið í heild sinni,“ segir Óðinn Freyr. „Þetta gerum við á ýmsum viðburðum okkar, á samfélagsmiðlum, í viðtölum og víðar. Við viljum að unga fólkið taki upplýsta ákvörðun seinna í sumar, sama hvort sú ákvörðun verður sú sama og okkar eða ekki. Það sem skiptir okkur mestu máli er að ungt fólk taki málið í sínar eigin hendur, kynni sér það, mæti á kjörstað, taki þátt í umræðunni og taki sjálft ákvörðun út frá staðreyndum,“ segir Óðinn Freyr. Hafa vefsíður Samtökin sem hér er vísað til hafa vefsíður. Heimssýn er með heimssyn.is, Evrópuhreyfingin með Evropa.is og Áfram Ísland með aframisland.is. Samtökin SJÁ og Ungir Evrópusinnar hafa sína félagsmiðla. Þá er Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál með vefinn rse.is. Háskólarnir og einstaka deildir þeirra hafa sínar vefsíður, sem og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Skipti úr já-i í nei Innleiða þarf allt reglusafn ESB Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Ný skýrsla um stöðu Íslands birt á vef Áfram Ísland Ræða Ólafs Ragnars komin á Spotify » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Aðeins eitt lið sem getur stöðvað Frakka Veisla í Kjarrá/Þverá en víða er rólegt Paul Watson buys ads at bus shelters Hið minnsta 28 létust í brunanum Leiðtogar bregðast við byssugjöfinni Umræðan Vatnið er jafn blautt hinum megin lækjar Samkeppni snýst um meira en fjölda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Tjaldsvæðin fljót að fyllast fyrir austan Sóttu kaldan og blautan ferðamann Innleiða þarf allt reglusafn ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Býst ekki við því að hótelið rísi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Fá gefins pylsu ef henni er stolið Kristrún leyst út með skammbyssu Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Kærður til lögreglu fyrir akstur gröfu Íbúar blekktir um framtíð bensínstöðvarinnar Bóluefni gegn ristli vinni einnig gegn heilabilun Jón fær ekki krónu þrátt fyrir uppsögn Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Austurlandið klárt í hitabylgju Málið rannsakað sem hatursglæpur Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Skapar óviðunandi hættuástand Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Sjálfstæðismenn klofnuðu við ráðningu bæjarstjóra Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Nýjast á mbl.is » Aðeins eitt lið sem getur stöðvað Frakka Veisla í Kjarrá/Þverá en víða er rólegt Paul Watson buys ads

Share this article