Innlent | mbl | 9.7.2026 | 10:32 Skora á ráðherra að auglýsa stöðuna Embla Hlökk Jóhannesdóttir og Ingibjörg Hrafnsdóttir hafa áhyggjur af framtíð MR. Samsett mynd Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda „Það er náttúrulega erfitt að hemja sig“ Íslensk börn verr sett en evrópsk Samræma viðmið til að takast á við skólaforðun Greinilega mikið ósamræmi Harma ójafnræðið: Sitja ekki við sama borð » Fleiri tengdar fréttir Nemendur á fornmálabraut Menntaskólans í Reykjavík hafa óskað formlega eftir því við mennta- og barnamálaráðuneytið að það synji nýjum brautarlýsingum fyrir skólann og skora jafnframt á ráðherra að auglýsa starf rektors laust til umsóknar. Ástæðan er ákvörðun Sólveigar Hannesdóttur rektors um að draga verulega úr latínunámi við skólann. Þetta kemur fram í aðsendri grein nemendanna Ingibjargar Hrafnsdóttur og Emblu Hlakkar Jóhannesdóttur en þær lýsa ákvörðuninni sem skemmdarverki og segja reiði og ólgu meðal nemenda hafa farið vaxandi. Frétt af mbl.is „Viljum blása til stórsóknar á málabraut“ Frétt af mbl.is Fækka einingum í MR Aðför að sérstöðunni „Sólveig Hannesdóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík, hefur tilkynnt þá ákvörðun sína að skerða latínunám á fornmálabraut skólans um heilt ár, úr þremur árum í tvö. Tilkynningin var mótþróafullt þrjóskuviðbragð við undirskriftasöfnunum til stuðnings latínunámi í skólanum og ákvörðunin liður í því að fækka einingum til stúdentsprófs á öllum brautum skólans,“ segir í upphafi greinar Ingibjargar og Emblu. Þær rekja það að einingafjöldi brauta skólans verði þannig jafnaður niður í 205 einingar en engin braut skólans er nú með svo fáar einingar. Þær brautir sem verða fyrir mestri skerðingu eru eðlisfræðibraut og fornmálabraut skólans. „Sérstaða MR er að gera meiri kröfur í bóknámi en aðrir framhaldsskólar. Nemendur hafa sótt í MR til þess að eiga kost á krefjandi námi. Skerðing náms í MR felur í sér aðför að þessari sérstöðu og þeim valkosti fyrir framhaldsskólanema,“ segir í greininni. Frétt af mbl.is Reyni að koma nemendum til manns Ein meginforsenda rannsókna á íslenskri sögu Þá segir að eina brautin sem verður fyrir verulegri skerðingu á höfuðnámsgrein í þessum aðgerðum rektors er fornmálabraut en sem þekkt er er MR er eini framhaldsskóli landsins sem enn heldur úti latínunámi. „Latína hefur verið höfuðnámsgrein í íslenskum framhaldsskólum frá stofnun þeirra á Íslandi við kristnitöku árið 1000. Latína er grundvallarnámsgrein til undirbúnings háskólanámi í húmanískum fræðum á Vesturlöndum, þ.e. málvísindum, sagnfræði, fornfræði og tengdum greinum,“ skrifa Ingibjörg og Embla. „Ein meginforsenda rannsókna á íslenskri miðaldasögu og þar með rannsóknum á íslensku handritunum í Árnasafni er latínukunnátta. Ásamt forngrísku er latína lykillinn að grundvallarritum vestrænnar menningar frá fornöld og fram á síðustu aldir.“ Rektor talað um upplýsingaóreiðu Þær segja að kennarar og nemendur hafi reynt að tala um fyrir rektor til að fá hann ofan af þessum áformum, en fyrir daufum eyrum. „Sérmenntun rektors er á öðru sviði og því ámælisvert að hann gangi gegn ráðum og vilja þeirra starfsmanna skólans sem þekkingu hafa á fornmálum og lærðra sem leikra velunnara MR sem bera skynbragð á það sem í húfi er. Rektor hefur haldið því fram að upplýsingaóreiða ríki um þetta mál, en hefur komið sér hjá beinum svörum við fyrirspurnum með óskýrum orðum um skyldu nemenda til að tala vel um skólann.“ Þá segja þær rektor hafa látið hjá líða að útskýra fyrir nemendum ákvörðunarferli um tilhögun náms í skólanum og breytingar á henni, t.d. með því að benda nemendum á skólaráð og skólanefnd. Þeir hafi því ekki haft ráðrúm til að láta fulltrúa sína á þeim vettvangi hafa uppi andmæli í tíma. Frétt af mbl.is „Minni kröfur, lélegri markmið. Það er því miður staðreynd“ Skora á ráðherra Í lok greinar sinnar segja Ingibjörg og Embla að nýjar brautalýsingar sem rektor ætlar sér að koma á í haust séu komnar í hendurnar á menntamálaráðuneytinu. „Við höfum óskað formlega eftir því við ráðuneytið að þeim verði synjað staðfestingar og breytt þannig að nám á brautum verði ekki skert og þriggja ára latínunámi á fornmálabraut verði haldið sem fyrr og um ókomin ár. Í ljós hefur komið að af slíkri synjun mun ekki geta orðið,“ segja þær. „Ekki verður búið við að MR missi svona niður sérstöðu sína fyrir geðþótta og skammsýni eins rektors sem fer gegn grunngildum skólans með einstrengingslegum yfirgangi og frekju við kennara og nemendur. Reiði og ólga meðal nemenda hefur farið vaxandi í réttu hlutfalli við vaxandi yfirgang rektors. T.d. hefur orðið pereat ítrekað sést krotað í kringum skólann undanfarna mánuði og mótmæli voru skipulögð en komu ekki til framkvæmda. Upp úr sauð með ákvörðun rektors, sem er skemmdarverk. Sjáum við ekki annað til bjargar sérstöðu og grunngildum MR en að skora á menntamálaráðherra að auglýsa starf rektors Menntaskólans í Reykjavík laust til umsóknar.“ Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda „Það er náttúrulega erfitt að hemja sig“ Íslensk börn verr sett en evrópsk Samræma viðmið til að takast á við skólaforðun Greinilega mikið ósamræmi Harma ójafnræðið: Sitja ekki við sama borð » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Undirrituðu samning um samruna: Daði Már viðstaddur Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Reiddist eftir leik í Vestmannaeyjum Íbúar blekktir um framtíð bensínstöðvarinnar Skora á ráðherra að auglýsa stöðuna Umræðan Vatnið er jafn blautt hinum megin lækjar Sama hvað það kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sóttu kaldan og blautan ferðamann Lögregla óskar eftir að ná tali af tveimur mönnum Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Áður óuppgefin varnartengd útgjöld farin að telja Mest lesið Í gær Í vikunni Býst ekki við því að hótelið rísi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Fá gefins pylsu ef henni er stolið Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Kærður til lögreglu fyrir akstur gröfu Jón fær ekki krónu þrátt fyrir uppsögn „Það er á milli Grænlands og Danmerkur“ Kristrún leyst út með skammbyssu Ætla að skoða ný tækifæri með íbúunum Sóttu kaldan og blautan ferðamann Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Austurlandið klárt í hitabylgju Málið rannsakað sem hatursglæpur Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Skapar óviðunandi hættuástand Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Sjálfstæðismenn klofnuðu við ráðningu bæjarstjóra Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Nýjast á mbl.is » Undirrituðu samning um samruna: Daði Már viðstaddur Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Reiddist eftir leik í Vestmannaeyjum Íbúar blekktir um framtíð bensínstöðvarinnar Skora á ráðherra að auglýsa stöðuna Umræðan Vatnið er jafn blautt hinum megin lækjar Sama hvað það kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Að minnsta kosti tveir að verki Allir níu í fjögurra vikna gæsluvarðhald í viðbót Bóluefni gegn ristli vinni einnig gegn heilabilun „Það er náttúrulega erfitt að hemja sig“ Mest lesið Í gær Í vikunni Býst ekki við því að hótelið rísi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Fá gefins pylsu ef henni er stolið Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Kærður til lögreglu fyrir akstur gröfu Jón fær ekki krónu þrátt fyrir uppsögn „Það er á milli Grænlands og Danmerkur“ Kristrún leyst út með skammbyssu Ætla að skoða ný tækifæri með íbúunum Sóttu kaldan og blautan ferðamann Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Austurlandið klárt í hitabylgju Málið rannsakað sem hatursglæpur Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Skapar óviðunandi hættuástand Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Sjálfstæðismenn klofnuðu við ráðningu bæjarstjóra Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu