Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sam­eina krafta gervi­greindar­líkana

Read Full Article →

Íslenska gervigreindarfyrirtækið Versoria kynnti á dögunum nýja lausn sem í stuttu máli gerir fyrirtækjum kleift að nýta ólík gervigreindarlíkön – hvort sem það er ChatGPT, Claude eða Gemini – innan sama kerfis. Lausnin þekkir fyrirtækið og vörumerkin og aðstoðar notendur að nýta það líkan sem hentar best fyrir hvert verkefni með tilheyrandi vinnusparnaði. „Þú getur hoppað auðveldlega úr einu líkani, t.d. einhverri útgáfu af ChatGPT yfir í ákveðna útgáfu af Gemini eða Claude án þess að fara út úr kerfinu,“ segir Hreiðar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda Versoria. „Maður getur sem dæmi unnið greiningar á tölum í Claude og fengið texta á ensku. Claude er léleg í íslensku en þá er ekkert mál að hoppa yfir í Gemini – sem er best í íslensku sem stendur – og fengið góða þýðingu á textanum innan sama spjalls.“ Um er að ræða lausnina Mími sem Versoria lýsir sem gervigreindarsvítu (e. AI suite). Lausnin er í lokaðri Beta prófun hjá völdum viðskiptavinum bæði á Íslandi og í Skandinavíu, en fyrirtækið vonast til að gefa hana formlega út í lok sumars. Áskrifendur koma til með að fá aðgang að helstu gervigreindarlíkönunum í gegnum Mími. Í kerfinu geta fyrirtæki bætt við millilagi (e. layer) með upplýsingum sem styður starfsmenn að framkvæma verkefni í samræmi við stefnu og umgjörð viðkomandi fyrirtækis. Það getur t.d. varðað lagaleg atriði, vörumerkið, samkeppnina og markaðs- og sölustarf. Fréttin er hluti af lengri umfjöllun í Viðskiptablaðinu sem kom út í gær. Áskrifendur geta nálgast greinina í heild sinni hér og annað efni úr blaðinu hér .

Share this article