Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Dóra Björt til liðs við Rauða krossinn

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 24 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Dóra Björt til liðs við Rauða kross­inn Hugrún Hannesdóttir Diego Dóra Björt Guðjónsdóttir. RÚV / Ragnar Visage Dóra Björt Guðjónsdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi hefur verið ráðin deildarstjóri höfuðborgardeildar Rauða krossins og hefur störf í september. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Rauða krossins. Dóra Björt var borgarfulltrúi Pírata áður en hún fór yfir til Samfylkingarinnar í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Hún fékk hins vegar ekki á framboðslista Samfylkingarinnar í borginni. Fyrir 31 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Skemmd­ar­varg­ar við Graf­ar­vogs­kirkju náðust á upp­töku Lögregla hefur myndefni undir höndum þar sem tveir einstaklingar sjást fremja eiganarspjöll á tröppum Grafarvogskirkju. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu sem hatursglæpur. Fyrir 47 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Forseti Íslands For­set­inn í al­þjóð­legri nefnd um gervi­greind til góðs Halla Tómasdóttir forseti Íslands tók í dag sæti í alþjóðlegri ráðgjafanefnd um gervigreind. Nefndin á að styðja við að gervigreind verði nýtt til góðs. Fyrir 48 mínútumÍÞRÓTTIR Hestar Heims­met slegið tvisv­ar í gær Hestar og knapar fara á kostum á landsmóti hestamannafélaga á Hólum í Hjaltadal þessa dagana. Nokkrar tíur hafa farið á loft og einkunnamet á heimsvísu var sett í gær... tvisvar! Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lög­regl­an leitar tveggja manna Mist Þormóðsdóttir Grönvold Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar tveggja manna vegna máls sem er til rannsóknar hjá embættinu. Í tilkynningu lögreglu eru mennirnir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000. Þá eru þeir sem þekkja til mannanna eða vita hvar þá er að finna einnig beðnir um að hringja í lögregluna eða að senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Sak­born­ing­ar í Straums­vík­ur­máli í fjög­urra vikna gæslu­varð­hald til við­bót­ar Gæsluvarðhald yfir sakborningum í stórfelldu kókaínsmyglmáli fyrir tveimur vikum hefur verið framlengt um fjórar vikur. Einn þeirra kom fyrir dómara í dag. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Handa­band Trumps og Kristún­ar vakti at­hygli – „Það er já­kvætt og hlýtt á milli okkar“ Bandaríkjaforseti sneri sér við á leið úr myndatöku leiðtoga á NATO fundi í Ankara og heilsaði forsætisráðherra Íslands með handabandi. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Síð­ustu nagl­arn­ir í lík­kistu tölvu­leikja­diska Playstation-tölvuleikir hætta að koma út á diskum árið 2028. Þáttastjórnandi Game Tíví harmar þróunina en segir hana eiga sér eðlilegar skýringar. Sala á tölvuleikjum í verslunum hérlendis hefur minnkað mikið síðustu ár. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Land­helg­is­gæsl­an telur sér heim­ilt að miðla stað­setn­ingu Band­er­os Landhelgisgæslan telur bæði heimilt og eðlilegt að miðla staðsetningu skips Paul Watson-samtakanna „vegna þeirrar ógnar sem hvalveiðiskipunum gæti stafað af aðgerðum Banderos“. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Fjöl­skyld­an ró­að­ist þegar afi ákvað að koma með Einar Dagur Brynjarsson hjólaði hringinn í kringum landið til styrktar Barnaspítala Hringsins. Með í för var afi hans og nafni og góðar vinkonur, sem öll fylgdu honum hvern kílómetra af þeim 1300 sem hann hjólaði í ýmsu veðri. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Norðurland Sigla á minna álagi til að minnka ol­íu­notk­un Grímseyjarferjan Sæfari siglir á minna álagi en vant er til þess draga úr olíunotkun. Með því að sigla undir minna álagi lengist siglingartíminn um 10-15 mínútur. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Rann­saka skemmd­ar­verk við Graf­ar­vogs­kirkju sem hat­urs­glæp Skemmdarverkið sem unnið var á tröppum fyrir utan Grafarvogskirkju í nótt hefur verið tilkynnt til lögreglu sem rannsakar hvort það sé hatursglæpur. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Spá­kort­ið sýnir 20+ og bók­un­um rignir inn á tjald­svæð­um Það spáir vel yfir tuttugu stiga hita austan- og norðaustanlands um helgina. Tjaldverðir búa sig undir annasama helgi og víða er orðið þéttbókað. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Góður andi á leið­toga­fundi NATO og mikið talað um sam­stöðu Andinn á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins var góður, þátt fyrir titring í aðdraganda þessa fundar, segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í viðtali við RÚV. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menning Við þurfum bóka­söfn rétt eins og við þurfum græn svæði Skerða á þjónustu Þjóðarbókhlöðunnar í haust. Bókaverðir víkja fyrir öryggisvörðum og opnunartíminn verður styttur. Kamilla Einarsdóttir, bókavörður og rithöfundur, segir að bókasöfn séu mikilvæg almenningi. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Þrúður Vil­hjálms­dótt­ir er látin Þrúður Vilhjálmsdóttir leikkona er látin, 53 ára að aldri. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Skerða orku til fyr­ir­tækja á Suð­ur­landi, Vest­ur­landi og Vest­fjörð­um um óákveð­inn tíma Alvarleg bilun í spenni í Búrfellsvirkjun og viðhald hjá öðrum orkuframleiðendum veldur því að Landsnet skerðir orku um óákveðinn tíma til ákveðinna fyrirtækja á Suðurlandi og Vesturlandi. Skerðingin gæti varað í nokkra daga. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Spá því að verð­bólga verði umfram for­sendu­ákvæði Eldsneytisverð hefur lækkað um nærri 3% síðan í júní samkvæmt verðathugun greiningardeildar Landsbankans, sem spáir óbreyttri verðbólgu. Hún gerir ráð fyrir að matarkarfan hækki um 0,23% í júlí. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Hildur Antons semur við Newcastle Almarr Ormarsson Landsliðskonan Hildur Antonsdóttir er gengin í raðir Newcastle United á Englandi eftir tveggja ára dvöl hjá Madrid CFF á Spáni. Félagið tilkynnti vistarskiptin í morgun. Hildur Antonsdóttir er mætt til Newcastle newcastleunited.com / Newcastle United Newcastle leikur í næstefstu deild Englands, Women's Super League 2, og hefur gefið út að stefnan sé sett á efstu deildina, WSL. Hildur er þrítugur miðjumaður, uppalin í Val en lék með Breiðablik í sjö ár áður en hún hélt til Fortuna Sittard í Hollandi 2022. Þaðan fór hún til Madrídar. Hún hefur spilað 37 landsleiki og skorað í þeim tvö mörk. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Tennis Djokov­ic í und­an­úr­slit eftir rúm­lega fimm klukku­tíma leik Serbinn Novak Djokovic mætti Kanadamanninum Félix Auger-Aliassime í 8-manna úrslitum Wimbledon-mótsins í tennis í gærkvöld. Viðureignin stóð í fimm klukkutíma og 15 mínútur. Djokovic er 39 ára, 14 árum eldri en Auger-Aliassime. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Varnarmál Aukið sam­starf um ör­ygg­is- og varn­ar­mál á norð­ur­slóð­um Ísland slóst í dag í hóp með fjórum öðrum ríkjum sem stefna að því að auka öryggi skipaumferðar á norðurslóðum. Samkomulag um þetta var staðfest á hliðarlínum leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins sem nú stendur yfir í Ankara. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjanesbær Segir hót­el­áform­in gerð í sam­ráði við nær­sam­fé­lag­ið Upplýsingafulltrúi Isavia segir hagsmuni Keflavíkurflugvallar og nærsamfélagsins samofna. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar hefur lýst áhyggjum af að hótel við flugvöllinn verði til þess að færri komi í bæinn. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Rokk­land minn­ist Mega­s­ar Megas er allur og Rokkland minnist hans. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Málað yfir regn­boga­fán­ann við Graf­ar­vogs­kirkju: „Ekki á vegum kirkj­unn­ar“ Í nótt var málað yfir hinsegin fánann á tröppum Grafarvogskirkju með þeim íslenska. Sóknarprestur segir þetta ákveðna tegund skemmdarverks. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Ætla að leyfa Úkra­ínu að fram­leiða Pat­r­i­ot-flaug­ar Bandaríkjaforseti hótar hörðum árásum á Íran í kvöld og segir úti um samkomulag um vopnahlé Utanríkismálastjóri ESB segir nýjustu árásir flækja mjög tilraunir til að koma friði á. Zelensky Úkraínuforseti er ánægður með fund sinn með Trump sem segist ætla að leyfa Úkraínumönnum að framleiða Patriot-loftvarnaflaugar. Trump tók í höndina á Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands, í myndatöku leiðtoganna. Hún segir samband þeirra gott. FRÉTTAVAKT Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump segir vopna­hléi við Íran lokið Bandaríkjaforseti segir samningaviðræður við Íran tímasóun og af sinni hálfu sé vopnahléi þeirra á milli lokið. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Bjóða 250 þúsund krónur fyrir upp­lýs­ing­ar um stað­setn­ingu hval­skip­anna Samtök Pauls Watson ætla að greiða 250 þúsund krónur fyrir rauntímaupplýsingar um staðsetningu hvalveiðiskipanna svo þau geti stöðvað veiðarnar. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Bjart og hlýtt fyrir austan en vætu­samt og svalt í öðrum lands­hlut­um Hæð suðaustur af landinu veldur suðvestlægum áttum, vætusömu og svölu veðri í flestum landshlutum en björtu og hlýju fyrir austan. Hiti að 20 stigum í dag. 8. júlí 2026 kl. 6:56INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Rann­sókn á brun­an­um á Stuðl­um lokið og tíu með stöðu sak­born­ings Lögregla hefur lokið rannsókn á brunanum á Stuðlum í október 2024. Tíu hafa réttarstöðu sakbornings og málið er komið til ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 8. júlí 2026 kl. 6:30ERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið „Að sjálf­sögðu verjum við Kon­ungs­rík­ið Dan­mörku“ Forsætisráðherra Danmerkur segir Dani tilbúna til að verja Grænland með herstyrk, rétt eins og allt annað landsvæði sem tilheyrir aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins. Bandaríkjaforseti sagði enn á ný í gær að Bandaríkin ættu að ráða yfir Grænlandi. 8. júlí 2026 kl. 6:27ERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Línur eru skýrar og við verðum að virða full­veldi, segir for­sæt­is­ráð­herra Ísland stendur undir væntingum NATO og er verðugur fulltrúi þess á norðurslóðum, sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra við upphaf leiðtogafundarins í morgun. Hún segir línurnar skýrar með Grænland; það verði að virða fullveldi. 8. júlí 2026 kl. 6:00ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Svona verða 8-liða úr­slit­in á HM Átta lið standa eftir á heimsm

Share this article