Innlent | Morgunblaðið | 21.2.2026 | 7:19 Andlát: Haraldur Sigurðsson Haraldur Sigurðsson, sölustjóri og skemmtikraftur, lést á Landspítalanum í Fossvogi 18. febrúar, 83 ára að aldri, eftir nokkur veikindi. Haraldur, sem alltaf var kallaður Halli, var fæddur 5. júní 1942 í Hafnarfirði, sonur Unu Huldar Guðmundsdóttur og Sigurðar Haraldssonar. Hann ólst upp hjá föðurafa sínum og ömmu í Miðey í Austur-Landeyjum. Hann fékk snemma áhuga á söng, enda söngmaður góður, og söng í skólahljómsveitinni Capella á Héraðsskólanum á Skógum þar sem hann var við nám. Hann átti eftir að syngja með fleiri hljómsveitum sunnanlands, m.a. Blástökkum á Selfossi og síðar Drekum í Reykjavík. Síðar gekk hann til liðs við hljómsveitina Faxa, þar sem Þórhallur bróðir hans var á trommum, og sú sveit gaf út plötu og spilaði víða um landið sumarið 1967. Ferillinn í skemmtanabransanum hófst á Sjónvarpinu þegar þeir bræður, Halli og Laddi, voru fengnir til að vera raddir leikbrúðanna Gláms og Skráms. Þeir vöktu strax mikla lukku og voru eftirsóttir í skemmtiþætti og hjá Stundinni okkar og víðar. Þeir fóru síðan af stað á eigin vegum með frumsamið efni og gáfu einnig út plötur með gamansöngvum og eftirhermum og komu fram víða. Hvert einasta mannsbarn þekkti þá Halla og Ladda. Bræðurnir Laddi og Halli árið 2002. mbl.is/Árni Sæberg Halli var tengdur við skemmtanabransann í nánast hálfa öld og kom fram á fjölmörgum plötum, bæði með HLH-flokknum og Ladda. Margir muna eftir plötunni Haraldi í Skrýplalandi sem kom út 1979 og var ein vinsælasta platan það sumar. Hún var síðan endurútgefin undir nafninu Halli og Laddi í Strumpalandi fimmtán árum síðar, en þá söng Laddi fyrir strumpana. Halli hóf störf hjá bílaumboðinu Jöfri þar sem hann var sölustjóri og varð strax andlit fyrirtækisins í auglýsingum. Síðar vann hann við smíðar, enda mjög handlaginn, og loks í Húsasmiðjunni til 65 ára aldurs. Halli kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Ragnhildi Ólafsdóttur, árið 1969 og þau bjuggu víða í Reykjavík og í Mosfellsbæ en síðustu árin í Grafarvogi. Þau eiga þrjár dætur, Ólöfu Unu, Helgu Dögg og Jóhönnu Báru og sjö barnabörn og barnabarnabörnin eru þrjú og eitt á leiðinni. Halli og Laddi á Edduverðlaununum árið 2001. mbl.is/Jim Smart Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Andlát: Haraldur Sigurðsson Talinn vera undir mölinni Forstjórinn með stöðu sakbornings Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Sameinuð eftir sex ára fjarsamband Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Fleira áhugavert Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Fannst örendur í fangelsinu Verra en árið 1992 Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Sérstaða dönskunnar tímaskekkja Bjóða fjölskyldu milljónir fyrir neyðarheimili Sigríður og Jón Karl á Bessastaði Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Vilja að komugjöld í viðhaldsmeðferð verði felld niður Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Netbilun olli truflununum Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn? Guðlaugu lokað að beiðni Veitna Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Andlát: Haraldur Sigurðsson Talinn vera undir mölinni Forstjórinn með stöðu sakbornings Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Sameinuð eftir sex ára fjarsamband Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Fleira áhugavert Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ Andrew laus en enn til rannsóknar Sérstaða dönskunnar tímaskekkja Framleiðslan sögð hefjast fyrr en áætlað var Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Sérstaða dönskunnar tímaskekkja Bjóða fjölskyldu milljónir fyrir neyðarheimili Sigríður og Jón Karl á Bessastaði Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Vilja að komugjöld í viðhaldsmeðferð verði felld niður Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Netbilun olli truflununum Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn? Guðlaugu lokað að beiðni Veitna Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat