Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Forsetinn í alþjóðlegri nefnd um gervigreind til góðs

  • What: International AI ethics conference held
  • Impact: Discussions on AI for the public good
Read Full Article →

Gervigreind verði nýtt til góðs Alþjóðlega ráðgjafanefndin, sem Halla Tómasdóttir tekur sæti í, kom saman í fyrsta sinn í dag í Genf í Sviss í tengslum við heimsþing um gervigreind til góðs sem haldið er þessa dagana í borginni. Halla er meðal stofnfélaga nefndarinnar. Heimsþingið er haldið á vegum Alþjóðafjarskiptasambandsins og er hluti af stafrænni viku í Genf. Forseti Íslands ávarpar ráðstefnurnar Á sama tíma fara fram tvær ráðstefnur í borginni á vegum Sameinuðu þjóðanna. Önnur er um upplýsingasamfélagið og hin um opinbera stefnumótun á sviði gervigreindar. Forseti Íslands ávarpaði síðarnefndu ráðstefnuna í gær og gesti á heimsþinginu í dag. Halla Tómasdóttir hefur lagt ríka áherslu á að tækniframfarir verði að þjóna almenningi og að sú samfélagslega umbreyting sem felist í þróun gervigreindar auki ekki ójöfnuð, eins og segir á heimasíðu forsetans. Björn í ABBA meðal ræðumanna Á heimsþinginu talar fjöldi þekktra einstaklinga, meðal þeirra eru Annalena Baerbock fyrrverandi utanríkisráðherra Þýskalands, Brad Smith yfirstjórnandi Microsoft og Björn Ulvaeus sem er þekktastur fyrir að vera annað B-ið í hinni heimsþekktu hljómsveit ABBA.

Share this article