- What: Electricity cost changes due to new energy legislation
- Impact: Electricity bills in Iceland will change starting next month
Innlent | mbl | 8.7.2026 | 15:35 Áhrifin ættu að birtast strax á rafmagnsreikningnum Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Áhrif nýlegs frumvarps umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um breytingar á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku ættu að birtast strax á rafmagnsreikningum sem berast heimilum og fyrirtækjum í upphafi næsta mánaðar, að því er fram kemur í fréttatilkynningu á vef ráðuneytisins. Frumvarpið var samþykkt á Alþingi í síðasta mánuði og tóku lagabreytingarnar gildi þann 1. júlí. Nýju lögin fela í sér að jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku milli dreifbýlis og þéttbýlis eykst úr rúmum 60% í tæplega 90%. „ Lögin fela í sér þá nýbreytni að innleidd er þrepaskipting jöfnunargjalds raforku þannig að notkun undir 1.000 megavattstundum á ári ber hærra gjald en notkun umfram það mark. Með þessu er leitast við að tempra áhrif breytinganna á stærri raforkunotendur sem greiða þéttbýlistaxta og tryggja að kostnaðaraukning verði ekki óhófleg,“ segir í tilkynningunni. Ávinningurinn mestur við orkufreka starfsemi Fyrir heimili í dreifbýli er áætlað að raforkukostnaður lækki að meðaltali um rúmlega þúsund krónur á mánuði, en fyrir óniðurgreitt rafhitað húsnæði getur lækkunin numið rúmum átta þúsund krónum á mánuði. Segir þar einnig að ávinningur fyrirtækja verði enn merkjanlegri og þá sér í lagi hjá orkufrekri starfsemi á borð við landbúnað, garðyrkju og fiskvinnslu, þar sem lægri dreifikostnaður getur skipt verulegu máli fyrir rekstrarskilyrði og samkeppnishæfni. „Þetta er jafnaðarmennska í orkumálum og mikilvægt byggðamál. Fyrir landbúnað og ýmsa atvinnustarfsemi í dreifðum byggðum skiptir þetta gríðarlegu máli. Fyrir t.a.m. meðalstórt kúabú gæti lækkunin á dreifikostnaði raforku sem lagabreytingarnar skila numið rúmlega 40.000 krónum á mánuði, eða um 480.000 krónum á ári. Fyrir mörg bú er það fjárhæð sem skiptir máli á tímum þar sem aðföng, vextir og annar rekstrarkostnaður hafa hækkað mikið,“ er haft eftir Jóhanni Páli í tilkynningunni. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lionel Messi toppaði sjálfan sig Hafa ákveðið að loka kaffihúsinu Heilbrigðisráðuneytið gerir samning við HÍ Umfjöllun RÚV braut ekki siðareglur Mannréttindaráðið fagnaði 20 ára afmæli með sumarlotu Umræðan Aukin alþjóðaviðskipti Þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skapar óviðunandi hættuástand Hitinn um og yfir 20 stig á Austurlandi Lögregla óskar eftir að ná tali af tveimur mönnum Hótar að hætta öllum viðskiptum við Spán Mest lesið Í gær Í vikunni Nálgunarbanns krafist Austurlandið klárt í hitabylgju Skapar óviðunandi hættuástand Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Málið rannsakað sem hatursglæpur Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Hvað sögðu ungir eftir fund Áfram Íslands? Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Nálgunarbanns krafist Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Nýjast á mbl.is » Lionel Messi toppaði sjálfan sig Hafa ákveðið að loka kaffihúsinu Heilbrigðisráðuneytið gerir samning við HÍ Umfjöllun RÚV braut ekki siðareglur Mannréttindaráðið fagnaði 20 ára afmæli með sumarlotu Umræðan Aukin alþjóðaviðskipti Þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Árásarmaðurinn 16 ára: Tvær stúlkur særðar Áður óuppgefin varnartengd útgjöld farin að telja Austurlandið klárt í hitabylgju Hótar að hætta öllum viðskiptum við Spán Mest lesið Í gær Í vikunni Nálgunarbanns krafist Austurlandið klárt í hitabylgju Skapar óviðunandi hættuástand Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Málið rannsakað sem hatursglæpur Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Hvað sögðu ungir eftir fund Áfram Íslands? Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Nálgunarbanns krafist Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli