Kalkþörungaverksmiðja Ískalks á Bíldudal hefur stöðvað framleiðslu vegna raforkuskorts eftir að Landsnet takmarkaði afhendingu rafmagns til fyrirtækisins. Lokunin hófst í gær og mun hið minnsta standa yfir til klukkan tíu í kvöld. Halldór Halldórssonar, forstjóri félagsins, segir í samtali Bæjarins besta að einnig sé líklegt að verksmiðjan verði lokuð á morgun. Ískalk kaupir rafmagn af Orku náttúrunnar samkvæmt samningi, hvers skilmálar gera Landsneti meðal annars kleift að stöðva afhendingu þegar flutningskerfið ræður ekki við álag. Halldór bendir á að meginvandi máls sé skortur á flutningsgetu til Vestfjarða. Verksmiðjan þarf um 5,5 megavött af afli til starfseminnar. Halldór sagði að varanleg lausn felist í því að efla orkuframleiðslu á Vestfjörðum, enda séu annmarkar á flutningskerfi raforku nú orðnir til þess að stöðva starfsemi verksmiðjunnar. Íslenska kalkþörungafélagið velti 15,2 milljónum evra, eða um 2,2 milljarða króna, á síðasta ári og hagnaðist um 1,1 milljón evra eða tæplega 160 milljónir króna. Í nýjasta ársreikningi félagsins segir að eftirspurn hafi aukist á árinu 2025. Ársverk félagsins voru 30 í fyrra.