Innlent | mbl | 8.7.2026 | 14:10 Ný skýrsla um stöðu Íslands birt á vef Áfram Ísland Af upphafsfundi hreyfingarinnar Áfram Ísland. Í skýrslunni er dregin upp heildstæð mynd af stöðu Íslands í alþjóðlegum samanburði, og sýna niðurstöðurnar að Ísland stendur ESB ríkjum framar. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Ræða Ólafs Ragnars komin á Spotify Skuldaþróun skárri á Íslandi en í ESB ESB í besta falli að keppa í miðri annarri deild Nýr fræðsluvefur um upplýsingaöryggi Opna kynningarvef og dreifa bæklingi í ágúst » Fleiri tengdar fréttir Áfram Ísland hefur birt nýja skýrslu á vef sínum þar sem fram kemur að lífskjör og efnahagsleg staða Íslands standi almennt traustari fótum en í flestum ríkjum Evrópusambandsins. Í skýrslunni er dregin upp heildstæð mynd af stöðu Íslands í alþjóðlegum samanburði og sýna niðurstöðurnar að Ísland stendur ESB-ríkjum framar og að þróun efnahagsmála hafi verið hagfelldari síðustu ár hvort sem horft er til hagvaxtar, atvinnuleysis, framleiðni eða opinberra fjármála. Skýrslan er unnin af Kontext ehf. í samstarfi við Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál, en meðal höfunda hennar er hagfræðingurinn Konráð S. Guðjónsson sem lagt hefur Morgunblaðinu lið við samanburð á efnahag og lífsgæðum milli Íslands og aðildarríkja Evrópusambandsins. Frétt af mbl.is Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Frétt af mbl.is Lausnin flóknari en gjaldmiðlaskipti Vefunum hleypt af stað Áfram Ísland, nýstofnuð hreyfing þeirra sem telja að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins, hefur jafnframt komið á fót nýrri vefsíðu, aframisland.is , þar sem skýrslan hefur verið birt. Þar má einnig nálgast upplýsingar um starf hreyfingarinnar og helstu álitaefni sem snúa að þjóðaratkvæðagreiðslunni, sem og þær ræður sem fluttar voru á opnunarfundi Áfram Íslands sem yfir 800 manns sóttu mánudaginn 6. júlí. Þess má einnig geta að SJÁ, hreyfing þeirra sem vilja að úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst verði þau að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju, hefur hleypt vef sínum í loftið á léninu jatiladsja.is . Frétt af mbl.is Fjöldahreyfing gegn ESB-aðild stofnuð Frétt af mbl.is ESB í besta falli að keppa í miðri annarri deild Áfram Ísland hefur jafnframt komið á fót nýrri vefsíðu, aframisland.is, þar sem skýrslan hefur verið birt. Sterk staða ungs fólks og jöfn dreifing lífskjara Í skýrslunni kemur jafnframt fram að kaupmáttur sé með því mesta sem gerist á Íslandi og hafi vaxið hratt á undangengnum árum, að því er fram kemur í tilkynningu. Ljóst sé þó að háir vextir og mikil verðbólga standi hagkerfinu fyrir þrifum, sem skýrist þó einkum af ólíkri hagþróun og að launahækkanir hafi verið mun meiri á Íslandi en í ESB. Frétt af mbl.is Hvers vegna eru vextir svona háir? Skýrslan sýnir einnig að lífskjör á Íslandi eru ekki aðeins meðal þeirra bestu sem gerast heldur virðist þeim jafnframt dreift með jafnari hætti en almennt innan ESB. Sérstaklega er bent á sterka stöðu ungs fólks á Íslandi, þar sem hlutfall þeirra sem eru hvorki í vinnu, námi né starfsþjálfun er það lægsta meðal samanburðarríkja. Þá kemur einnig fram að hagstæð aldurssamsetning þjóðarinnar styrki stöðu Íslands til að mæta þeim áskorunum sem fylgja öldrun samfélaga á komandi áratugum. Tengdar fréttir Ísland og ESB Ræða Ólafs Ragnars komin á Spotify Skuldaþróun skárri á Íslandi en í ESB ESB í besta falli að keppa í miðri annarri deild Nýr fræðsluvefur um upplýsingaöryggi Opna kynningarvef og dreifa bæklingi í ágúst » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Landsliðsmaðurinn til Bítlaborgarinnar? Um hundrað laxa dagur í Þverá/Kjarrá Ný skýrsla um stöðu Íslands birt á vef Áfram Ísland Árásarmaðurinn 16 ára: Tvær stúlkur særðar Biskup kennir í brjósti um skemmdarvargana Umræðan Aukin alþjóðaviðskipti Kerfið sem át börnin sín Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þór yfirgefur Bandero: Erum með gott auga á skipinu Málið rannsakað sem hatursglæpur Dæmdur fyrir nauðgun: Lögreglan vopnaðist Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Mest lesið Í gær Í vikunni Nálgunarbanns krafist Skapar óviðunandi hættuástand Austurlandið klárt í hitabylgju Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Málið rannsakað sem hatursglæpur Hvað sögðu ungir eftir fund Áfram Íslands? Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Rannsókn lokið eftir 20 mánuði Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Sögulegt skip til sýnis í Reykjavíkurhöfn Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Nýjast á mbl.is » Landsliðsmaðurinn til Bítlaborgarinnar? Um hundrað laxa dagur í Þverá/Kjarrá Ný skýrsla um stöðu Íslands birt á vef Áfram Ísland Árásarmaðurinn 16 ára: Tvær stúlkur særðar Biskup kennir í brjósti um skemmdarvargana Umræðan Aukin alþjóðaviðskipti Kerfið sem át börnin sín Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leita enn að flutningavélinni Biskup kennir í brjósti um skemmdarvargana Austurlandið klárt í hitabylgju Leyfa framkvæmdir í trássi við eigendur Mest lesið Í gær Í vikunni Nálgunarbanns krafist Skapar óviðunandi hættuástand Austurlandið klárt í hitabylgju Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Málið rannsakað sem hatursglæpur Hvað sögðu ungir eftir fund Áfram Íslands? Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Rannsókn lokið eftir 20 mánuði Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Sögulegt skip til sýnis í Reykjavíkurhöfn Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu