Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Trump hótar að rjúfa við­skipta­sam­band við Spán

Read Full Article →

Donald Trump Bandaríkja­for­seti hefur hótað því að rjúfa við­skipta­sam­band Bandaríkjanna og Spánar vegna ágreinings um út­gjöld til varnar­mála innan NATO og af­stöðu spænskra stjórn­valda til stríðsins við Íran. Sam­kvæmt Telegraph lét Trump um­mælin falla á blaða­manna­fundi í Tyrk­landi, þar sem hann sat við hlið Mark Rutte, fram­kvæmda­stjóra NATO. For­setinn sagði Spán vera „hræði­legan sam­starfsaðila“ innan banda­lagsins og sakaði spænsk stjórn­völd um að leggja ekki nægi­lega mikið af mörkum til sam­eigin­legra varnar­mála. Spánn hefur ekki fallist á nýtt mark­mið NATO um að aðildarríki verji sem nemur 5% af lands­fram­leiðslu til varnar­mála. Þá hefur ríkis­stjórn Pedro Sánchez einnig hafnað því að Bandaríkin fái að nota spænska loft­helgi eða her­stöðvar á Spáni vegna stríðsins við Íran. Trump sagði að Spánn væri „ekki sammála neinu“ og beindi orðum sínum að Scott Bes­sent, fjár­málaráðherra Bandaríkjanna. Hann sagðist ekki vilja eiga í við­skiptum við Spán og gaf til kynna að gripið yrði til að­gerða tafar­laust. „Ekki einu sinni tala við þá. Þeir eru von­lausir. Þeir eru slæmt fólk,“ sagði Trump sam­kvæmt Telegraph. Hann bætti við að Spán­verjar hefðu mikið upp úr við­skiptum við Bandaríkin og að það myndi breytast. Rof á við­skipta­sam­bandi ríkjanna gæti haft veru­leg áhrif á bandarísk fyrir­tæki. Út­flutningur Bandaríkjanna til Spánar nam 26,6 milljörðum dala á síðasta ári, sam­kvæmt opin­berum tölum sem Telegraph vísar til. Bandaríkin voru með 5,2 milljarða dala af­gang af vöru­við­skiptum við Spán árið 2025. Á fyrstu fimm mánuðum þessa árs hafa bandarísk fyrir­tæki flutt út vörur til Spánar fyrir 10,2 milljarða dala, en inn­flutningur frá Spáni til Bandaríkjanna nam 8,2 milljörðum dala. Af­gangur Bandaríkjanna af vöru­við­skiptum við Spán nemur því tveimur milljörðum dala það sem af er ári. Spænsk stjórn­völd hafa brugðist varfærnis­lega við um­mælunum. Heimildar­menn innan spænsku ríkis­stjórnarinnar sögðu við Reu­ters að stjórn­völd tækju hótunum Trump „af ró og yfir­vegun“. Þeir sögðu Spán eiga í framúr­skarandi félags­legum, menningar­legum og efna­hags­legum sam­skiptum við Bandaríkin og að það væri ekki ætlun spænskra stjórn­valda að breyta því. Sjá einnig Trump segir vopnahléi við Íran lokið Um­mæli Trumps féllu á sama tíma og hann lýsti því yfir að vopna­hlé við Íran væri að hans mati úr sögunni eftir árásir á skip í Hormússundi. Olíu­verð hækkaði í kjölfarið og hluta­bréf lækkuðu í Evrópu. Sam­kvæmt Telegraph lækkaði FTSE 100-vísi­talan í Lundúnum um 1,5% og FTSE 250-vísi­talan um 1,9%.

Share this article