Donald Trump Bandaríkjaforseti segist líta svo á að vopnahlé Bandaríkjanna og Írans sé lokið eftir að Íranir gerðu árás á flutningaskip við Hormússund. „Fyrir mitt leyti er samkomulagið búið. Ég vil ekki eiga frekari samskipti við þá,“ sagði Trump við fréttamenn á leiðtogafundi NATO í Ankara í morgun. „Þau eru lygarar, þau eru svikarar, þau eru sjúkt fólk,“ bætti Trump við þar sem hann sat við hlið Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. „Ég leyfi okkar frábæru samningamönnum að halda áfram viðræðum ef þeir vilja, en ég sé þetta ekki gerast.“ Sjá einnig Bandaríkjamenn ráðast á Íran Bandarískar hersveitir gerðu árásir á Íran í gærkvöldi í hefndarskyni fyrir árásir Írana á þrjú flutningaskip á Hormússundi undanfarna daga. Íranir svöruðu með árásum á Kúveit og Barein. Heimsmarkaðsverð olíu hefur hækkað um meira en 6% í morgun og stendur verð á framvirkum samningum með Brent-hráolíu í 78,9 dölum á tunnu þegar fréttin er skrifuð.