Innlent | Morgunblaðið | 8.7.2026 | 7:00 Þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst Grímur Grímsson Morgunblaðið/Karítas Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Í ágúst verður haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Um aðild Íslands að ESB hafa lengi verið skiptar skoðanir. Samkvæmt skoðanakönnunum er rétt rúmlega helmingur þjóðarinnar á því að segja já og rétt tæplega helmingur á því að segja nei. Það verður ekki nægjanlega undirstrikað að kosningarnar í ágúst varða ekki aðild að ESB heldur hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður, sem, ef samþykkt verður, skili samningi sem borinn verður undir þjóðina til samþykktar eða synjunar. Þá og aðeins þá verður kosið um aðild að ESB með kostum þess og kynjum sem munu sjást í samningnum. Hvað ræður afstöðu fólks í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu er vitaskuld mismunandi, og mikilvægt að virða ólík sjónarmið fólks. Þó slær sá tónn undarlega þegar borið er fram að ekki sé mögulegt að það geti komið góður samningur út úr viðræðum við ESB. Jafnvel er því haldið fram að það sé ekki um neitt að semja. Með slíkum málflutningi er farið með rangt mál. Í flestum tilvikum eru valkostir verðmæti sem í sumum tilvikum er jafnvel hægt að meta til fjár. Þess heldur er undarlegt að vilja ekki sjá valkostina sem fram kæmu í samningi og ákveða þá hvort aðild fylgi fleiri kostir en gallar. Með því að segja já í ágúst er alls ekki verið að lýsa því yfir að viðkomandi vilji ganga í Evrópusambandið. Það er eingöngu verið að segja að fólk vilji sjá möguleikana, hverjir þeir eru og hvort og hvernig þeir muni henta okkur Íslendingum. Í umræðunni sem skapast hefur undanfarið hefur verið kallað eftir upplýsingum um hvað það þýðir að segja já eða nei, burtséð frá hinu augljósa að segðu fleiri já þá yrðu hafnar á ný viðræður við ESB. Sennilega má komast að þeirri niðurstöðu að frá báðum hliðum hafi í einhverjum tilvikum verið farið frjálslega með staðreyndir en þannig er oft svona barátta að slengt er fram fullyrðingum sem standast misjafnlega vel. Það er hins vegar mikilvægt að það sé hægt að ganga að sem næst fullnægjandi upplýsingum. Sumu verður þó ekki svarað fyrr en samningur liggur fyrir, fram að því er um getgátur að ræða, getgátur sem oft eru þó byggðar á því sem aðrar þjóðir hafa upplifað við inngöngu í Evrópusambandið. En hvað þýðir það að segja nei? Ef horft er til forsögu þessara kosninga þá var það kosningaloforð Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks fyrir kosningar til Alþingis 2016 að þjóðin fengi að kjósa um það hvort umsóknarferli um aðild að Evrópusambandinu sem hafist hafði 2009 yrði framhaldið. Þetta loforð var svikið. Í mínum huga er það svo að ef þjóðin ákveður að vilja ekki hefja á ný viðræður við ESB þá er málið, að sinni, af borðinu og við höldum okkar striki með samninginn um Evrópska efnahagssvæðið sem okkar mikilvægasta milliríkjasamning ásamt varnarsamningnum við Bandaríkin. Á síðustu misserum höfum við verið endurtekið minnt á það að á alþjóðavettvangi geta sviptingar verið miklar og tíðar. Það er raunhæfur möguleiki að innan fárra ára muni Norðmenn huga í þriðja sinn að inngöngu í ESB. Gerist það er óvíst hvernig EES-samningurinn muni þróast en líklegt er að það verði erfiðara, ef þá gerlegt yfirhöfuð, að viðhalda honum fyrir Ísland og Liechtenstein. Verði það raunin er allsendis óvíst hversu vel Íslendingar geti haldið fram sínum ýtrustu kröfum í aðildarviðræðum við ESB. Ég er staðfastur í þeirri ákvörðun minni að segja já í ágúst og ég hlakka til að sjá eftir atvikum afrakstur viðræðna við ESB í samningi. Þá og aðeins þá mun ég taka ákvörðun um hvort ég ljái því atkvæði mitt að ganga í sambandið. Grímur Grímsson þingmaður. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Aðsend grein: Kerfið sem át börnin sín Aðsend grein: Þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst 47 ára og sýndi línurnar í bikiníi Óvanalegt að skrifa um listgrein kvenna Umræðan Aukin alþjóðaviðskipti Kerfið sem át börnin sín Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skuldaþróun skárri á Íslandi en í ESB Þór yfirgefur Bandero: Erum með gott auga á skipinu Getur tekið allt að sex mánuði að ljúka rannsókn Útgjöld til varnarmála nálgast 4% Mest lesið Í gær Í vikunni Hvað sögðu ungir eftir fund Áfram Íslands? Nálgunarbanns krafist Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Áfram nærri 22 gráða hiti Skapar óviðunandi hættuástand Setur upp grímu og verður ný persóna Hjón á forsetalistanum Sleppingar auka ekki laxagöngur Rannsókn lokið eftir 20 mánuði Dæmdur fyrir nauðgun: Lögreglan vopnaðist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Nýjast á mbl.is » Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Aðsend grein: Kerfið sem át börnin sín Aðsend grein: Þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst 47 ára og sýndi línurnar í bikiníi Óvanalegt að skrifa um listgrein kvenna Umræðan Aukin alþjóðaviðskipti Kerfið sem át börnin sín Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Getur tekið allt að sex mánuði að ljúka rannsókn Íslensk börn verr sett en evrópsk Skapar óviðunandi hættuástand Bindur vonir við fundinn í Ankara Mest lesið Í gær Í vikunni Hvað sögðu ungir eftir fund Áfram Íslands? Nálgunarbanns krafist Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Áfram nærri 22 gráða hiti Skapar óviðunandi hættuástand Setur upp grímu og verður ný persóna Hjón á forsetalistanum Sleppingar auka ekki laxagöngur Rannsókn lokið eftir 20 mánuði Dæmdur fyrir nauðgun: Lögreglan vopnaðist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi