Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Leyft að ráða vélstjóra í gegn um starfsmannaleigu

Read Full Article →

Benjamín Ómar Þorvaldsson, hafnarstjóri í Ölfusi, fékk á dögunum heimild til að ráða vélstjóra á dráttarbáta í Þorlákshöfn að utan í gegnum starfsmannaleigu. Um er að ræða tímabundna heimild frá framkvæmda- og hafnarnefnd, þar sem enginn vélstjóri með nauðsynleg réttindi á svo öfluga báta hafði svarað auglýsingum hafnarstjórans áður en hann fékk leyfi til að taka vélstjóra á leigu. Umsóknir bárust þó í kjölfarið og eru þær til skoðunar. Benjamín hafnarstjóri vildi ekki veita viðtal vegna málsins. Mikilvægt sé að tryggja mönnun dráttarbáts „Nefndin tekur undir með hafnarstjóra að mikilvægt sé að tryggja mönnun dráttarbáts hafnarinnar og þar með rekstraröryggi hafnarinnar. Fram hefur komið að ekki hefur tekist að ráða vélstjóra í fullt starf,“ segir í fundargerð hafnarnefndar frá því 29. júní síðastliðinn. Sagði hafnarnefndin hafnarstjóra fá heimild til að ganga til tímabundinna samninga við starfsmannaleigu um vélstjóra á dráttarbát þar til fastir starfsmenn fengjust ráðnir. Umsvifin vaxið hratt „Heimildin er veitt að því gefnu að viðkomandi starfsmenn uppfylli lögbundin starfsréttindi og hæfniskröfur,“ sagði nefndin og fól hafnarstjóranum jafnframt að halda áfram vinnu við ráðningu starfsmanna í fulla vinnu. Núverandi vélstjóri mun hætta í haust. Auk þess mun eiga að bæta við öðru stöðugildi vélstjóra. Þannig að eins og útlitið var orðið virtist ekki annað til ráða en að leita til starfsmannaleigu. Tveir dráttarbátar og hraður vöxtur Í Þorlákshöfn eru tveir dráttarbátar; Herdís og Ölver. Umsvifin í höfninni í Þorlákshöfn hafa vaxið hröðum skrefum á undanförnum árum og áætlanir eru um að þau verði enn meiri í framtíðinni. Bæta hefur þurft í starfsmannahópinn vegna þessarar auknu skipaumferðar. Fjögur áætlunarskip í viku Til Þorlákshafnar koma fjögur áætlunarskip í viku; þrjú frá Smyril Line og eitt frá Thor Cargo – fyrir utan aðra umferð. Vaktir eru allan sólarhringinn þannig að það þarf að vera með bakvaktir. Í Þorlákshöfn mun reyndar verið svo komið að farið er að horfa til þess að kaupa veigameiri dráttarbát til að ráða við stóru flutningaskipin. Erfitt víða að manna vélstjórastöður Skortur á vélstjórum er alls ekki bundinn við Þorlákshöfn heldur er það útbreiddur vandi eins og fram hefur komið í Fiskifréttum, meðal annars í tengslum við mönnun á nýjum og öflugum björgunarbátum sem Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur verið að láta smíða fyrir sig.

Share this article