Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Rússar halda árásum sínum á Kænugarð áfram

This article describes ongoing kinetic military attacks, specifically missile and drone strikes, against Kyiv, Ukraine, with a focus on the resulting civilian infrastructure damage and casualties. It highlights a critical resource shortage of air defense missiles for Ukrainian forces, which reduces their defensive capability against these aerial threats. The article also notes political efforts by Ukrainian leadership to secure enhanced support for air defense systems from allied nations.
Read Full Article →

Loftárásir Rússa á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, héldu áfram í nótt. Fréttamenn AFP segja kröftuga sprengingu hafa orðið í borginni áður en loftvarnarflautur ómuðu. Fjórar sprengingar til viðbótar hafi svo fylgt í kjölfarið. Vitali Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs, sagði eld loga í vörugeymslum og atvinnuhúsnæði í tveimur hverfum borgarinnar eftir árásirnar. Í tilkynningu á samfélagsmiðlum sagði hann íbúum borgarinnar að halda sig í loftvarnarbyrgjum. Rússar hafa gert flugskeytaárásir á borgina á síðustu dögum. 30 voru drepnir í hörðum árásum á mánudag. Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti er á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Ankara, höfuðborg Tyrklands. Hann hefur að undanförnu hvatt bandamenn sína til að efla stuðning við loftvarnarkerfi landsins. Úkraínski flugherinn hefur sagt loftvarnarflaugar skorta. Því ráði herinn verr við eldflaugaárásir Rússa.

Share this article