Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Blandað heil­brigðis­kerfi hag­kvæmast

Read Full Article →

Ágúst Birgisson hefur starfað sem lýtalæknir um árabil. Ágúst kom meðal annars að stofnun Læknastofa Akureyrar, sem er einkarekið fyrirtæki, fyrir nærri tveimur áratugum. Árið 2023 opnaði hann Læknastofur Reykjavíkur, þar sem hann starfar í dag samhliða störfum sínum á Læknastofum Akureyrar. Að hans mati er rekstur lítilla, sérhæfðra eininga í eðli sínu einfaldari en rekstur stórra opinberra heilbrigðisstofnana. „Hér eru afköstin líklega tvisvar til fjórum sinnum meiri en á spítala. Það er ekki hægt að reka spítala á sama hátt; einkastofurnar geta gert hlutina á miklu einfaldari hátt,“ segir Ágúst. Hann leggur þó áherslu á að einkarekstur geti aldrei komið í stað öflugs sjúkrahúss. „Spítalinn er nauðsynlegur. Þar eiga flóknari verkefnin heima. Einfaldari og rútínubundin verkefni ættu hins vegar að vera annars staðar, þar sem hægt er að sinna þeim með hagkvæmari hætti og draga þannig úr álagi á kerfið.“ Að hans mati myndi Landspítalinn ekki ráða við öll þau verkefni sem nú eru unnin utan spítalans. „Ef þetta færi allt inn á Landspítalann þá myndi það kaffæra hann algjörlega,“ Segir umræðuna of hugmyndafræðilega Umræða um einkarekstur í heilbrigðisþjónustu einkennist að hans mati of mikið af hugmyndafræðilegum ágreiningi. Víða sé samspil opinbers rekstrar og einkarekinnar sérfræðiþjónustu eðlilegur hluti heilbrigðiskerfisins. „Við erum öll að sinna sjúklingum, hvort sem þú ert innan einkageirans eða á spítala. Öll viljum við geta þjónustað og veitt þá læknishjálp sem þörf er á. Ástæðan fyrir því að ég vildi vinna sjálfstætt er að mig langaði að vinna og koma því að sem ég get gert,“ segir Ágúst. Æskilegt væri að fleiri læknar hefðu möguleika á að starfa bæði innan og utan hins opinbera kerfis. „Það er ekki gott að vera eingöngu inni á spítala, það er hollt að vinna utan hans líka. Þú öðlast mikla reynslu og aðra sýn með þeim hætti, og sú reynsla nýtist einnig í starfi innan spítalans.“ Að hans mati verður áframhaldandi samvinna milli opinberra stofnana og einkarekinna stofa lykilatriði, ef mæta eigi vaxandi þjónustuþörf í samfélaginu. „Við þurfum bæði kerfin. Ég held að það sé einfaldlega hagkvæmasta leiðin til að reka gott heilbrigðiskerfi fyrir íslenskt samfélag.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article