Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Stofnandinn selur eftir­standandi hlut sinn

Read Full Article →

Kim Fournais, annar stofn­enda danska fjár­festingar­bankans Saxo Bank, hefur selt allan hlut sinn í bankanum til sviss­neska einka­bankans J. Saf­ra Sarasin. Fournais átti 28,69% hlut í Saxo Bank. Kaupandinn er J. Saf­ra Sarasin, sem eignaðist rúm­lega 70% hlut í bankanum fyrr á árinu og verður nú eini eig­andi Saxo Bank, sam­kvæmt um­fjöllun Børsen. Kaup­verðið hefur ekki verið gefið upp. Børsen reiknar þó út að hlutur Fournais sé um 3,4 milljarða danskra króna virði, miðað við sama verð og J. Saf­ra Sarasin greiddi þegar bankinn keypti meiri­hluta í Saxo Bank. Það jafn­gildir um 66 milljörðum ís­lenskra króna miðað við gengi dönsku krónunnar upp á 19,1 krónu. Sjá einnig Stofnandi Saxo bank fer yfir bestu og verstu fjár­festingarnar Við­skiptin marka enda­lok Fournais sem hlut­hafa í Saxo Bank, rúmum þremur ára­tugum eftir að hann stofnaði bankann ásamt Lars Seier Christen­sen og Marc Hauschildt árið 1992. Fournais hverfur þó ekki frá bankanum. J. Saf­ra Sarasin segir að hann verði áfram stjórnar­for­maður Saxo Bank. „Til­kynningin í dag er að fullu í samræmi við þá framtíðarsýn sem samið var um við J. Saf­ra Sarasin og er næsta eðli­lega skref í þróun Saxo,“ segir Fournais í skrif­legri at­huga­semd sem Børsen birtir. Hann segir að það hafi verið stærsti heiður starfsævinnar að byggja Saxo upp á síðustu þremur ára­tugum og að hann hlakki til að styðja áfram við stefnumótun bankans. Sviss­neski bankinn eignaðist meiri­hluta í Saxo Bank í mars þegar gengið var frá kaupum á um 71% hlut í bankanum. Við­skipta­blaðið fjallaði þá um að J. Saf­ra Sarasin væri orðinn meiri­hluta­eig­andi og að eig­enda­skiptunum fylgdu um­fangs­miklar breytingar á stjórn­endum og stjórn bankans. Sjá einnig Komnir með 71% stöðu og sparka stjórn­endum Kim Fournais lét þá af störfum sem for­stjóri og tók við sem stjórnar­for­maður. Daniel Bel­fer, sem hafði verið for­stjóri Bank J. Saf­ra Sarasin, tók við sem for­stjóri Saxo Bank. Saxo Bank sagði í til­kynningu á þeim tíma að breytingarnar tækju gildi sam­hliða því að J. Saf­ra Sarasin lyki kaupum á meiri­hluta í bankanum. Við­skiptin nú eru hluti af kauprétti sem J. Saf­ra Sarasin samdi um þegar bankinn keypti meiri­hlutann í Saxo Bank, sam­kvæmt Børsen. Sviss­neski bankinn keypti einnig út minni hlut­hafa í mars, sem áttu saman­lagt um 1% í Saxo Bank. Jacob J. Saf­ra, stjórnar­for­maður J. Saf­ra Sarasin, segir Fournais hafa byggt upp ein­stakt fyrir­tæki. „Kim Fournais hefur byggt upp ein­stakt fyrir­tæki og frum­kvöðla­andi hans og óþreytandi vinna hafa gert Saxo að leiðandi alþjóð­legum aðila í stafrænum fjár­festingum,“ segir Saf­ra í til­kynningu. Hann segir kaupin endur­spegla langtíma­hugsun J. Saf­ra Sarasin. Bankinn muni varðveita sér­stöðu Saxo Bank en styðja við næsta vaxtar­skeið félagsins. Saxo Bank er einn þekktasti net- og fjár­festingar­banki Dan­merkur og býður við­skipta­vinum að eiga við­skipti með hluta­bréf, skulda­bréf, gjald­eyri, hrávörur og af­leiður á stafrænum við­skipta­kerfum. Bankinn hefur vaxið það mikið að danska fjár­mála­eftir­litið hefur skil­greint hann sem kerfis­lega mikilvægan fyrir fjár­málastöðug­leika í Dan­mörku. J. Saf­ra Sarasin er í eigu Saf­ra-fjöl­skyldunnar, sem á rætur í Sviss og Brasilíu og er talin meðal auðugustu banka­fjöl­skyldna heims. Þegar kaupin á meiri­hlutanum í Saxo voru kynnt var greint frá því að sam­stæðan hefði yfir 460 milljarða dala í eignum við­skipta­vina eftir sam­einingu við Saxo Bank. Kaup J. Saf­ra Sarasin á Saxo Bank drógu jafn­framt línu undir tíma­bil kín­verska bílarisans Geely sem stórs eig­anda í bankanum. Geely hafði áður verið stærsti hlut­hafi Saxo Bank og átti tæp­lega 50% hlut, en seldi hlutinn til sviss­neska bankans ásamt finnska fjár­málafélaginu Manda­tum. Saxo Bank var á sínum tíma meðal þeirra vestrænu fjár­mála­fyrir­tækja sem horfðu til Kína sem vaxtar­markaðar. Sú sýn breyttist eftir aukna spennu milli Bandaríkjanna og Kína, kórónu­veirufar­aldurinn, harðari reglu­setningu í Kína og versnandi horfur í kín­versku efna­hags­lífi. Með kaupunum á hlut Fournais er Saxo Bank nú al­farið kominn í hendur J. Saf­ra Sarasin. Stofnandinn situr þó áfram við borðið sem stjórnar­for­maður en eignar­haldið er orðið sviss­neskt. Sjá einnig Söluverð Saxo lækkar eftir háa sekt

Share this article