Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Jöklar rýrna á ný hraðar en áður

Read Full Article →

Tímabili hægfara rýrnunar jökla er lokið og þeir farnir að tapa massa jafn hratt og árin 1995 til 2011. Fjallað er um rýrnun jökla í nýju fréttabréfi verkefnisins Hörfandi jöklar. Hrafnhildur Hannesdóttir, jöklafræðingur á Veðurstofu Íslands, sagði í Fram undan á Rás 2 að tvær ástæður skýrðu þetta helst. „Vetrarúrkoman er í meira mæli að falla sem regn en snjór og svo erum við í fyrra með mjög hlýtt sumar og leysing sem hófst snemma í maí og hélt langt fram á haust.“ „Þetta er einsleitt mynstur. Þeir eru að hörfa á hverju ári.“ Jöklarnir sem rýrna hraðast eru þeir sem liggja lægst í landinu, svo sem Breiðamerkurjökull og Tungnajökull. Jökulsárlón.RÚV / Margrét Adamsdóttir

Share this article