Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Íslensk börn verr sett en evrópsk

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 6.7.2026 | 23:55 Íslensk börn verr sett en evrópsk Í mörgum grunnskólum landsins útskrifaðist ekki einn einasti nemandi með A í stærðfræði eða íslensku. Einn þeirra skóla er Dalvíkurskóli en þar hefur enginn nemandi hlotið A í þessum greinum í fjögur ár. mbl.is/Hari Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Samræma viðmið til að takast á við skólaforðun Greinilega mikið ósamræmi Harma ójafnræðið: Sitja ekki við sama borð Mótmæltu einkunnagjöf 2019: Nú fá 42% nemenda A Búseta og bakgrunnur hafa áhrif » Fleiri tengdar fréttir Greinilegt er að mikið ósamræmi er í einkunnagjöf grunnskóla landsins að sögn Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Gögn sem ráðuneytið hefur birt sýna mikinn mun á einkunnadreifingu milli grunnskóla. Hlutfall nemenda sem fá A í lokaeinkunn nær frá 0% hjá mörgum skólum, sér í lagi á landsbyggðinni, upp í 56,7% hjá Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi. „Það þarf enginn að halda að börn í einum skóla séu svo miklu færari en börn í öðrum skólum að þau séu að skora allt að 56% í einkunn upp á A á meðan aðrir skólar gefa ekki eitt einasta A,“ segir Inga í samtali við Morgunblaðið. „Þetta býður því heim að þarna sé mjög mikið ójafnræði á milli nemenda eftir skólum og þessi einkunnagjöf í bókstöfum er á ansi breiðum grunni.“ Börn sem fái háar einkunnir frá sínum grunnskólum séu tekin fram yfir önnur í „vinsælu framhaldsskólunum“. Frétt af mbl.is Mikill munur á einkunnagjöf staðfestur: 57% með A Dæmi eru um að skólar gefi hartnær 57 prósentum nemenda sinna A í lokaeinkunn á meðan aðrir skólar gefa engum hæstu einkunn. mbl.is/Eggert Jóhannesson Fáir kennarar sérhæfðir Í gögnum ráðuneytisins kemur einnig fram að 26 skólar á landsbyggðinni gáfu ekki einum einasta nemanda A í lokaeinkunn í stærðfræði árin 2025 og 2026. Er þarna verið að mismuna nemendum eftir búsetu? „Já, það sést bara á þessum gögnum. Þetta eru skýrar niðurstöður og það er engum blöðum um það að fletta,“ segir hún. Víða sé pottur brotinn í stærðfræðikennslu á landsbyggðinni hvað varðar að vera með sérhæfða kennara í greininni. Niðurstöður könnunar ráðuneytisins, sem einnig voru birtar í síðustu viku, sýna að lágt hlutfall kennara og leiðbeinenda í grunnskólum landsins hefur sérhæfingu í þeirri námsgrein sem þeir kenna. Kemur þar meðal annars fram að aðeins 24% þeirra sem kenna stærðfræði og 26% þeirra sem kenna náttúrugreinar við grunnskóla landsins eru með sérhæfingu í viðkomandi greinum. „Við teljum að það sé að koma niður á raunvísindum í skólanum. Þess vegna eru börnin okkar verr sett en víðast hvar annars staðar í Evrópu,“ segir Inga. Hún tekur skýrt fram að sökin liggi ekki hjá kennurum landsins. Þeir séu oft settir í þá stöðu að þurfa að kenna greinar sem þeir eru ekki sérhæfðir í. „Allir eru að gera sitt besta en þetta er samt sem áður ekki nógu gott og við þurfum að breyta þessu, það liggur fyrir.“ Hún segir það skref í rétta átt að breyta einkunnagjöf skólanna úr bókstöfum í tölustafi. Frétt af mbl.is Vill segja bless við bókstafina strax í sumar Tvær mögulegar skýringar Hagaskóli er einn þeirra skóla sem hafa gefið stórum hluta nemenda sinna A í einkunn á undanförnum árum. Í tölum ráðuneytisins kemur meðal annars fram að 32,27% nemenda sem útskrifuðust úr Hagaskóla árin 2025 og 2026 fengu A í lokaeinkunn í stærðfræði samanborið við 12,43% landsmeðaltal. Þá útskrifuðust 27,95% nemenda skólans með A í íslensku á sama tímabili samanborið við 6,75% landsmeðaltal. Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla segir tvær mögulegar útskýringar vera á þessu. Annaðhvort sýni nemendur í Hagaskóla betri námsárangur en nemendur annarra skóla við lok 10. bekkjar eða námsmat skólans sé annars konar en í öðrum skólum landsins. „En ég hef alltaf sagt að það er augljóst, það er algjörlega augljóst að námsmat í grunnskólum er ekki samræmt. Það er nógu flókið verkefni fyrir okkur, sem erum stór skóli með marga kennara, að samræma námsmat innan skólans,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið. Eins og áður hefur komið fram eru margir grunnskólar á landinu þar sem ekki einn einasti nemandi útskrifaðist með A í stærðfræði eða íslensku. Einn þeirra skóla er Dalvíkurskóli en þar hefur enginn nemandi hlotið A í þessum greinum í fjögur ár. „Að fá A er eitthvað sem er framúrskarandi þannig að það er ábyggilega misjafnt hvernig skólar leggja mat á til dæmis A og B+. Það er allur gangur á því hvernig þetta raðast,“ segir Friðrik Arnarson skólastjóri Dalvíkurskóla í samtali við Morgunblaðið. Skólinn hafi reynt að vera eins nákvæmur og hægt var við að gefa rétta mynd af stöðu nemenda. Það geti verið vandasamt að fá hæstu einkunn. Frétt af mbl.is Greinilega mikið ósamræmi Frétt af mbl.is Mótmæltu einkunnagjöf 2019: Nú fá 42% nemenda A Ómar Örn, skólastjóri Hagaskóla, sést hér á gangi með fyrrverandi borgarstjóra Heiðu Björgu Hilmisdóttur. Ljósmynd/Reykjavíkurborg Ekki metnir á sama grunni Björn Brynjúlfur Björnsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs sagði í færslu á samfélagsmiðlum í gær að búseta og bakgrunnur nemenda væru nú farin að hafa veruleg áhrif á næstu skref þeirra í námi. „Í nýju tölunum sést að sumir þeirra skóla sem gefa hæstar einkunnir eru í hverfum þar sem félagsleg og efnahagsleg staða foreldra er einna sterkust á landinu öllu. Börn úr þeim hverfum eiga því greiðari leið inn í eftirsótta framhaldsskóla en börn sem búa í öðrum hverfum eða landshlutum, þótt raunveruleg færni og námsárangur sé ekki endilega meiri,“ sagði Björn. Hann sagði afleiðingarnar vera að umsækjendur um skólavist væru ekki metnir á sama grunni. Sumir kæmust að vegna góðs námsárangurs, aðrir vegna einkunnaverðbólgu í skóla sínum en enn aðrir þyrftu frá að hverfa þó að þeir ættu inngöngu skilið. Frétt af mbl.is Búseta og bakgrunnur hafa áhrif Frétt af mbl.is Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Frétt af mbl.is „Að fá A er eitthvað sem er framúrskarandi“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Samræma viðmið til að takast á við skólaforðun Greinilega mikið ósamræmi Harma ójafnræðið: Sitja ekki við sama borð Mótmæltu einkunnagjöf 2019: Nú fá 42% nemenda A Búseta og bakgrunnur hafa áhrif » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Bandaríkin - Belgía, staðan er 0:1 Íslensk börn verr sett en evrópsk Flóknara mál en gospellag um bjór Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Gervigreindin gerir veðurspárnar betri Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allir farþegar undirgangast læknisskoðun Leit að Miami-flugi jókst um 1.000 prósent Flóknara mál en gospellag um bjór Kínversk glæpasamtök grunuð um mansal á Íslandi Mest lesið Í gær Í vikunni Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Krefst uppsagnar leigusamnings Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Lögreglumenn hugsi yfir vændiskonunum Allir farþegar undirgangast læknisskoðun Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Keypti símanúmer á nokkrar milljónir á „leynistað“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Nýjast á mbl.is » Bandaríkin - Belgía, staðan er 0:1 Íslensk börn verr sett en evrópsk Flóknara mál en gospellag um bjór Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Gervigreindin gerir veðurspárnar betri Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allir farþegar undirgangast læknisskoðun Komugjöld á heilsugæslu tvöfaldast Framkvæmdi húsleitir og lagði hald á 800 plöntur „Helgin mjög krefjandi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Krefst uppsagnar leigusamnings Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Lögreglumenn hugsi yfir vændiskonunum Allir farþegar undirgangast læknisskoðun Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Keypti símanúmer á nokkrar milljónir á „leynistað“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með

Share this article