- What: Iceland's electoral commission launches a website for the referendum on EU membership.
- Impact: Provides information for voters.
Landskjörstjórn hefur opnað kosningavef um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, sem fram fer 29. ágúst. Í tilkynningu frá landskjörstjórn segir að hún hafi það hlutverk að standa fyrir víðtækri kjynningu á því málefni sem borið er undir þjóðaratkvæði og hafi því opnað vefinn kosning.is . „Þar eru veittar hlutlausar upplýsingar um málefnið þannig að kjósandi geti tekið upplýsta afstöðu til þeirrar spurningar sem borin er fram. Á vefnum kosning.is er auk þess að finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninga,“ segir í tilkynningu. Þá verður kynningarbæklingi dreift á öll heimili í ágúst. Mynd af kjörkössum í sveitarstjórnarkosningum.RÚV / Ragnar Visage