Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Pólitísk óvissa ógnar áformum Rolls-Royce

Read Full Article →

Pólitísk óvissa í Bretlandi gæti sett 3 milljarða punda fjárfestingaráform Rolls-Royce í uppnám. Fyrirtækið óttast að hugsanleg stjórnarskipti leiði til endurskoðunar á ríkisútgjöldum og tefji fjárstuðning sem það telur nauðsynlegan til að hrinda verkefninu í framkvæmd. Frá þessu greinir Telegraph . Samkvæmt miðlinum hefur Rolls-Royce verið í viðræðum við bresk stjórnvöld um stuðning við þróun nýrrar kynslóðar hreyfla fyrir skammdrægar farþegaþotur frá Boeing og Airbus. Verkefnið markar fyrirhugaða endurkomu fyrirtækisins á markað sem það yfirgaf fyrir um fimmtán árum. Fyrirtækið telur verkefnið mikilvægt vaxtarskref, og hefur áður lýst því yfir að það gæti skapað allt að 40 þúsund störf og aukið útflutning Breta. Fjárfestingin er hins vegar slík í umfangi, að Rolls-Royce vill síður ganga fram með áformin án þátttöku stjórnvalda. „Ef breyting verður á ríkisstjórn má búast við að ný stjórnvöld fari yfir verkefnið á ný,“ sagði Rob Watson, forseti borgaralegrar flugvéladeildar Rolls-Royce, á kynningarfundi í Derby í síðustu viku. Jafnframt gæti óvissan haft áhrif á samkeppnisstöðu fyrirtækisins. Þýsk stjórnvöld hafa sýnt verkefninu áhuga og viljað tryggja sér stærra hlutverk í framleiðslunni, á meðan samkeppnisaðilarnir General Electric og Safran vinna að eigin hreyflalausn fyrir næstu kynslóð farþegaþota. Þrátt fyrir að stöðu mála, segir Rolls-Royce sig ekki knúið til að ráðast strax í verkefnið. Fyrirtækið geti áfram byggt vöxt sinn á framleiðslu hreyfla fyrir stærri farþegaflugvélar, en lítur á endurkomu á markað fyrir skammdrægar þotur sem mikilvægt skref til lengri tíma.

Share this article