Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Rússar gerðu aðra stóra árás á Kyiv

This article describes kinetic military attacks and cyber-physical warfare, not a software vulnerability or specific cyber threat. It details recent missile strikes on Kyiv, drone engagements, and fighting over the city of Kostyantynivka, but does not contain technical details about an exploitable vulnerability, attack vector, or patch information relevant to IT security systems.
Read Full Article →

Reuters fréttaveitan segir að að minnsta kosti níu hafi verið drepnir og 46 séu særðir eftir árásir rússneska hersins í nótt. Árásir voru gerðar á 15 blokkir og fleiri byggingar og enn er verið að leita að fólki í nokkrum þeirra. Þá var einn drepinn í Butcha, norðurvestur af Kyiv. Stutt er síðan Rússar gerðu umfangsmestu árásir á borgina frá upphafi innrásarinnar, en 31 var drepinn á fimmtudag í árásum á borgina. Úkraínuher gerði árásir á orkuinnviði í borginni Sevastopol á Krímskaga í nótt sem olli víðtæku rafmagnsleysi í borginni um stund. Þá skaut rússneski herinn niður rúmlega 500 dróna í Moskvu og Pétursborg í nótt. Herir Rússa og Úkraínumanna hafa barist um yfirráð borgarinnar Kostyantynivka í Donbas-héraði undanfarna mánuði. Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagði á föstudaginn að rússneski herinn hefði náð borginni á sitt vald. Forseti Úkraínu, Volodomyr Zelensky, segir það lygi og að borgin sé enn undir yfirráðum Úkraínu. Talsmaður úkraínska hersins segir að staðan í Kostyantynivka sé erfið en staðfestir að borgin sé enn undir yfirráðum úkraínska hersins.

Share this article