Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tveir greindir með berklasmit: Einkennalausir og ekki smitandi

  • What: Two healthcare workers in Iceland were diagnosed with tuberculosis after a screening.
  • Impact: The individuals are asymptomatic and not contagious, so there is no risk to patients who visited the clinic.
Read Full Article →

Tveir starfsmenn á heilsugæslustöð á höfuðborgarsvæðinu greindust með berklasmit þegar starfsfólk stöðvarinnar var skimað. Fólkið er hvorki með einkenni um berkla né smitandi. Fólk sem hefur komið á heilsugæslustöðina er því ekki útsett fyrir smiti í samskiptum við starfsfólkið. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins greindi frá þessu í dag. Framlínustarfsfólk var skimað eftir að smit greindust hjá starfsfólki á bráðamóttöku Landspítalans. Það sem þetta þýðir er að bakterían greindist í blóði starfsmanna án þess að þeir séu með einkenni berkla eða geti smitað aðra. Heilsugæslan tekur sérstaklega fram að þó að berklabakterían greinist í blóði þá þýði það ekki að fólk sé með berkla.

Share this article