Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Marokkómenn með stórmótamark — eina von Afríku?

  • What: Marokko wins against Canada in World Cup
  • Impact: Advances to next round of World Cup
Read Full Article →

Marokkó er fyrsta liðið til að tryggja sæti sitt í 8-liða úrslitum HM karla í fótbolta eftir 0-3 sigur á Kanadamönnum. Kanada fór vel af stað og var yfir í nær öllum þáttum leiksins í fyrri hálfleik, án þess þó að skapa sér færi. Svo virtist sem framlengingin gegn Hollendingunum sæti enn í Marokkómönnum. Þeir komust þó yfir með marki sem fótboltaáhugamenn vilja sjá á stórmóti. Hakimi tók snjalla aukaspyrnu út á Ounahi sem lúrði fyrir utan teiginn. Hnitmiðað skot hans fór í gegnum þykka þvögu og inn. Markið kom á 50. mínútu, þvert gegn gangi leiksins. Ounahi skoraði svo annað mark á 82. mínútu eftir snarpa skyndisókn. Þegar Kanada fleygði öllum sínum mönnum fram kom þriðja markið en Rahimi skoraði eftir stoðsendingu Brahim Diaz. Eina von Afríku? Marokkómenn sýndu þarna stórmótareynslu sína, en liðið fór alla leið í undanúrslit árið 2022. Þrátt fyrir að vera lakari aðilinn í um 50 mínútur fara þeir áfram í 8-liða úrslit með öruggum sigri. Þeir eru líklega eina von Afríku á þessu móti, en aðeins Egyptar eru enn með og eiga erfiðan leik gegn heimsmeisturum Argentínu. Afrísku liðin stóðu sig þó vel í riðlakeppni og fóru átta af níu liðum áfram í 32-liða úrslit. Marokkó mætir sigurvegaranum úr leik Frakka og Paragvæja sem stendur ný yfir. Öll mörkin: Marokkó fór áfram í 8-liða úrslit HM í fótbolta með öruggum 0-3 sigri gegn Kanada. Af afrískum liðum eru Marokkómenn og Egyptar einu liðin sem enn eru með í mótinu, en Egyptar mæta Argentínu í 16-liða úrslitum.

Share this article