Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hörmung á Hólmavík

Read Full Article →

Vetrarhátíðin „Hörmungadagar á Hólmavík“ er mótsvar við „Hamingjudögum“ og er alls kyns hörmulegum atburðum gert hátt undir höfði á versta tíma ársins. Þó er glettnin ekki langt undan. Andri Freyr Arnarsson hörmungastóri skipulagði þriggja daga dagskrá og segir margt í boði fyrir alla aldurshópa. Má nefna sungin harmakvæði, volæðisfyrirlestur, tónlist, myndlistarsýningu og draugagöngu sem dæmi. „Þetta er náttúrulega hörmungarástand hér í bænum því við höfum enga innviði til að taka á móti öllum þessum gestum. Við buðum frítt á tjaldsvæðið og allur matur er eiginlega búinn“. Þrátt fyrir myrkur og hremmingar ríkir gleði yfir hátíðinni. Yngstu gestirnir hlýddu á draugasögur og fengu leiðsögn við að teikna skrímsli og forynjur. Um tuttugu listamenn komu fram á Hörmungadögum í ár.

Share this article