Þyrla og eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-Gró og TF-Sif, voru kölluð út í kvöld vegna veikinda farþega um borð í skemmtiferðaskipi á hafsvæðinu milli Íslands og Grænlands. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, samskiptastjóri Landhelgisgæslunnar. Skipið var miðja vegu milli Íslands og Grænlands, norðvestur af Vestfjörðum eða um 150 sjómílur frá landi þegar óskað var eftir aðstoð gæslunnar. Ásgeir segir að á slíkum slóðum sé takmörkuð aðstoð í boði og því hafi raunhæfasti kosturinn verið að kalla út Landhelgisgæsluna frá Íslandi. Vegna fjarlægðarinnar frá landi þurfti bæði þyrlu og eftirlitsflugvél í verkefnið. Eftirlitsflugvélin annast fjarskipti á leiðinni. Þyrla og flugvél Landhelgisgæslunnar yfirgáfu Reykjavík á áttunda tímanum og tók flug um eina klukkustund og 40 mínútur. Búið væri að sækja veika farþegann, sem sé eldri einstaklingur. Gert sé ráð fyrir því að þyrlan lendi á Landspítalanum seinna í kvöld. „Það gekk allt vel og þyrlan er á leiðinni til baka.“