Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tónlistin aftur á Spotify og fær „22 krónur“ fyrir hvern hlustanda

Read Full Article →

Tónlistarmaðurinn Fannar Ingi Friðþjófsson, betur þekktur sem Hipsumhaps, hefur aftur opnað fyrir hlustun á tónlistinni sinni á streymisveitum. Hann fjarlægði plötusafnið sitt af af Spotify og öðrum streymisveitum í nóvember og sór að hann myndi ekki setja hana aftur inn fyrr en fjármögnun á fjórðu plötunni: Algrími hjartans yrði lokið. Platan kom út 17. júní og nú er aftur hægt að hlusta á fyrstu þrjár plöturnar aftur. „Það er einhver misskilningur í gangi hjá fólki að það eigi tónlistina með því að vera með Spotify áskrift en það er ekki staðan. Þú leigir hana,“ segir í bréfi Fannars til aðdáenda sinna á vef Hipsumhaps . Dósapeningur fyrir hverja hlustun Fannar segist fá um 22 krónur fyrir hvern þann sem hlustar á allt safn Hipsumhaps einu sinni í gegn. Til samanburðar sé skilagjald fyrir plastflöskur og áldósir 20 krónur. Hann þakkar öllum þeim sem styrktu hann í aðdraganda plötuútgáfunnar: „Ég vil þakka öllum sem styrktu útgáfuna, mættu á tónleika, bókuðu gigg eða keyptu varning upp á síðkastið. Sérstakar þakkir til Tónskáldasjóðs RÚV og Upptökusjóðs STEF fyrir mikilvæga fjárstyrki,“ segir hann. Auk þess býður hann aðdáendum sínum sem vilja eignast tónlistina að kaupa allt safnið á 10 þúsund krónur. „Þá getur þú stoppað mig í Bónus og sagst eiga allar plöturnar. Ég lofa að brosa,“ segir hann.

Share this article