- What: New sales director appointed for Sæplast and iTUB in Europe
- Impact: Business expansion and market strategy
Bragi Smith hefur verið ráðinn sölustjóri Sæplasts og iTUB í Evrópu. Í nýju hlutverki mun hann leiða sölustarfsemi á evrópskum mörkuðum með áherslu á sjávarútveg, fiskeldi, matvælaiðnað og önnur vaxtartækifæri. Hann starfaði áður sem viðskipta- og þróunarstjóri hjá iTUB. Hann hefur víðtæka reynslu af sölu, rekstri, markaðsmálum og viðskiptaþróun. Bragi rak Lín Design frá 2007 til 2017 og starfaði áður í bankageiranum, meðal annars hjá Kaupþingi í eignastýringu og er með MBA-gráðu frá University of New Haven í Bandaríkjunum. Ráðningin er liður í áframhaldandi uppbyggingu Sæplasts og iTUB í Evrópu, þar sem félögin vinna að því að samþætta sölu, þjónustu og lausnir fyrir viðskiptavini. Sjá einnig iTUB kynnir margnota ker til flutninga á heilum laxi Sæplast var stofnað á Dalvík árið 1984 og hefur frá upphafi þróað og framleitt endurnýtanleg plastker fyrir sjávarútveg og matvælaiðnað. iTUB býður leigu- og þjónustulausnir fyrir endurnýtanleg ker og rekur eitt stærsta leigu- og deilikerfi fiskikera í Evrópu. Með samspili Sæplasts sem framleiðanda og iTUB sem þjónustu- og leigufélags eru fyrirtækin sögð geta fyrirtækin viðskiptavinum sveigjanlegar lausnir sem styðja við hagkvæmari, skilvirkari og sjálfbærari rekstur. „Ég hlakka til að takast á við þetta nýja hlutverk. Sæplast og iTUB búa yfir sterkri þekkingu, öflugum vörum og skýrum tækifærum til vaxtar. Markaðurinn er að breytast og við sjáum aukna eftirspurn eftir lausnum sem bæta meðferð hráefnis, draga úr sóun, auka skilvirkni og styðja við sjálfbærari virðiskeðjur í sjávarútvegi og matvælaiðnaði,“ segir Bragi Smith.