Yfirvöld í Úkraínu óttast að margir séu fastir í rústum níu hæða blokkar sem hrundi að hluta í árásum Rússa á Kyiv í nótt. Að minnsta kosti 5 voru drepnir og 34 særðust í umfangsmiklum flugskeyta- og drónaárásum Rússa í gærkvöld og nótt. Borgarstjóri Kyiv, Vitali Klitschko, greinir frá þessu í færslu á Telegram í nótt. Mikill eldur braust út í byggingunum sem árásirnar voru gerðar á, þar á meðal fjölbýlishúsi, hóteli og heilbrigðisstofnun. Fjöldi fólks leitaði skjóls í neðanjarðarlestarkerfi borgarinnar. Klitschko, ráðlagði íbúum borgarinnar að halda sig í öruggu skjóli á meðan á árásunum stendur. Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti var í Dublin á Írlandi í gær og flýtti för sinni til heimalandsins þegar honum bárust upplýsingar um að árásir Rússa væru yfirvofandi. Á blaðamannafundi sagði hann Rússa hafa undirbúið miklar árásir í nokkurn tíma. Úkraínumenn hafa einnig aukið langdrægar drónaárásir á Rússland undanfarið, sem beinast að orkuinnviðum og hernaðarmannvirkjum.
This article describes a kinetic military attack involving large-scale missile and drone strikes against civilian infrastructure, including a residential building, hotel, and medical facility in Kyiv, resulting in significant casualties and damage. The attack vector is physical ordnance delivered by air, causing structural collapse and large fires. The primary mitigation action advised for civilians in the area is to remain in secure shelters until the attacks conclude.