Innlent | mbl | 1.7.2026 | 21:00 Efna til ESB-rökræða í ágúst: Eftirspurnin mikil Guðlaug Þór Þórðarson, fyrrverandi utanríkisráðherra, hefur staðfest þátttöku sína sem fulltrúi þeirra sem hyggjast segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni, en ekki liggur enn fyrir hver mun sækja rökræðurnar fyrir hönd þeirra sem vilja að já-ið verði fyrir vali þjóðarinnar. Samett mynd/mbl.is/Eggert/mbl.is/Hjörtur Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Ekki um klofning innan hreyfingarinnar að ræða Áfram Ísland kýs sjálfstæði af björtum hug í ágúst Samantekt skýrslu um valkostina á íslensku Matvælaverð lækkaði um 10% Hugmyndir Evrópusambandsins óspennandi » Fleiri tengdar fréttir Evrópusambandið Vilja framleiða bandarísk vopn í þýskum verksmiðjum Hugmyndir Evrópusambandsins óspennandi Flugfélög hafa meiri áhyggjur af sköttum en stríði Merz segir Serbíu verða að ákveða sig varðandi ESB Hleypa aðildarviðræðum af stað » Fleiri tengdar fréttir Félagið Paradigm hyggst efna til rökræðna um ESB-aðild í Hörpu í tilefni af fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Stefnt er að því að viðburðurinn fari fram helgina 14. til 16. ágúst, eða um hálfum mánuði fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi utanríkisráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur staðfest þátttöku sína sem fulltrúi þeirra sem hyggjast segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Ekki liggur fyrir hver muni sækja rökræðurnar fyrir hönd þeirra sem vilja að já-ið verði fyrir vali þjóðarinnar, þótt helstu ráðamenn komi til greina. Frétt af mbl.is Örlítill meirihluti vill áframhald viðræðna Guðlaugur kveðst í samtali við mbl.is spenntur fyrir þessum vettvangi til þess að ræða málin á skýran og málefnalegan máta, enda hafi umræðan ekki borið eins hátt og hann vildi enn sem komið er. „Ég er búinn að fá mjög mikil viðbrögð og hef fundið fyrir mikilli stemningu fyrir þessum viðburði frá því að þetta fór að kvisast út, og það hefur mikið af fólki haft orð á því við mig að það vilji akkúrat fá vettvang eins og þennan, þar sem fólk getur borið saman málflutning okkar sem munum ræðast við.“ Frétt af mbl.is Hugmyndir Evrópusambandsins óspennandi Frétt af mbl.is Vegferðin í höndum þjóðarinnar Rökræðurnar munu fara fram í Hörpu ráðstefnuhúsi um miðbik ágústmánaðar. mbl.is/Árni Sæberg Vill slétta úr staðreyndavillum Guðlaugur telur það mjög mikilvægt að umræða um þetta mikla hagsmunamál þjóðarinnar verði lífleg, enda af nógu að taka hvað varðar ágreiningsmál. „Auðvitað hljótum við sem erum í forystu í stjórnmálum og höfum reynslu af þessu að geta skipst á skoðunum á opinberum vettvangi og ég held að það sé mjög gott að fólk hafi þá tækifæri til þess að meta hvað við höfum fram að færa.“ Hann segist jafnframt vonast til þess að geta farið yfir ágreiningsmál, til dæmis hvað varðar valdaframsal, aðlögun að regluverki ESB á meðan á viðræðum stendur og Evrópuréttinn sem almenningur mun þurfa að lúta komi að aðild, og slétt úr staðreyndavillum sem hafa verið á sveimi í umræðunni. Frétt af mbl.is Veigamikið framsal ríkisvalds Frétt af mbl.is Mat ráðuneytis annað en höfunda Engin námskeið í ESB-fræðum yfir sumarið Guðlaugur Þór segir ekki hafa farið mikið fyrir umræðu um þessi mál að undanförnu en segist hafa fundið fyrir mikilli eftirspurn eftir vettvangi á borð við þennan þegar sótt var um aðild í fyrsta skipti á tímum Jóhönnustjórnarinnar. „Ég finn fyrir mikilli eftirspurn eftir því að tveir einstaklingar með mikla reynslu á þessu sviði og með öndverðar skoðanir mætist á opinberum vettvangi svo fólk geti fengið að heyra rök með og á móti,“ segir hann. „Það er enginn að fara í námskeið í ESB-fræðum núna í sumar, held ég, heldur vill fólk fá upplýsingar frá þeim sem þekkja þessi mál hvað best, og ég held að við sem þarna munum mætast uppfyllum þau skilyrði.“ Umræður í anda Oxford Guðlaugur Þór hefur einnig fengið Daniel nokkurn Hannan til liðs við sig, en Hannan hefur rætt ESB-málin á Íslandi áður, ekki síst í sambandi við samskipti ESB og Bretlands. Frétt af mbl.is Um ekkert að semja í aðildarviðræðum Til stendur að umræðurnar verði í ætt við rökræður sem kenndar eru við Oxford-háskóla en dr. Ásgeir Theodór Jóhannesson mun stýra umræðunum. Almenningi verður gefinn kostur á að kaupa miða á rökræðurnar og er ætlunin að taka þær einnig upp og gefa út á netinu fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Félagið Paradigm hefur áður staðið fyrir viðburðum á Íslandi, til að mynda komu rithöfundarins Jordans Peterson til landsins. Tengdar fréttir Ísland og ESB Ekki um klofning innan hreyfingarinnar að ræða Áfram Ísland kýs sjálfstæði af björtum hug í ágúst Samantekt skýrslu um valkostina á íslensku Matvælaverð lækkaði um 10% Hugmyndir Evrópusambandsins óspennandi » Fleiri tengdar fréttir Evrópusambandið Vilja framleiða bandarísk vopn í þýskum verksmiðjum Hugmyndir Evrópusambandsins óspennandi Flugfélög hafa meiri áhyggjur af sköttum en stríði Merz segir Serbíu verða að ákveða sig varðandi ESB Hleypa aðildarviðræðum af stað » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Belgía - Senegal, staðan er 0:2 Efna til ESB-rökræðna í ágúst: Eftirspurnin mikil Blótaði dómaranum: „Mér er sama“ „Fannst ég geta gert hlutina betur“ Verður sá dýrasti í sögu félagsins Umræðan Varnaðarorð utanríkisráðherra Atvinnuleysi um hásumar er óviðunandi staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mótmæltu einkunnagjöf 2019: Nú fá 42% nemenda A Slysið á Eir á borði rannsóknardeildar lögreglu Efna til ESB-rökræðna í ágúst: Eftirspurnin mikil Fækkun beiðna áhyggjuefni Mest lesið Í gær Í vikunni Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Uppsagnir á Bifröst Andlát: Sr. Þórir Stephensen Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Féll fram af svölum og lést Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Nýjast á mbl.is » Belgía - Senegal, staðan er 0:2 Efna til ESB-rökræðna í ágúst: Eftirspurnin mikil Blótaði dómaranum: „Mér er sama“ „Fannst ég geta gert hlutina betur“ Verður sá dýrasti í sögu félagsins Umræðan Varnaðarorð utanríkisráðherra Atvinnuleysi um hásumar er óviðunandi staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki búsettir hér á landi Slysið á Eir á borði rannsóknardeildar lögreglu „Það þarf ekkert að hvíla stálið“ Ríkisstjórn afgreiðir fjárlög í dag Mest lesið Í gær Í vikunni Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Uppsagnir á Bifröst Andlát: Sr. Þórir Stephensen Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Féll fram af svölum og lést Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ