Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Skotvopn á Ólafsfirði reyndist vera leikfangabyssa

Read Full Article →

RÚV / Sölvi Andrason Lögreglan á Norðurlandi eystra lokaði götu á Ólafsfirði í kvöld eftir að tilkynning barst um mann sem væri á ferð með skotvopn í hendi. Að sögn lögreglu reyndist vopnið vera leikfangabyssa. Þetta staðfestir Börkur Árnason, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra á Akureyri, í samtali við fréttastofu. Hann segir manninn ekki hafa verið ógnandi. Lögregla hafi brugðist við tilkynningunni, kannað málið og rætt við manninn á vettvangi. Opnað hefur verið fyrir umferð um götuna á ný. Að sögn Barkar var maðurinn ekki að leika sér með leikfangabyssuna á ógnandi hátt. Lögregla er farin af vettvangi og málinu er lokið.

Share this article