Innlent | mbl | 30.6.2026 | 23:30 „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Töluverð óánægja ríkir meðal íbúa Grindavíkur með áframhaldandi bann við fastri búsetu í eignum fasteignafélagsins Þórkötlu sem taka á gildi 1. september. mbl.is/Eyþór Sólveig Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Atburðarásin eins og í bíómynd Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Vonast til að búið verði í Grindavík Spilin stokkuð upp á nýtt í Grindavik Grindvíkingar mótmæltu fyrir utan Alþingi » Fleiri tengdar fréttir Töluverð óánægja ríkir meðal íbúa Grindavíkur með áframhaldandi bann við fastri búsetu í eignum fasteignafélagsins Þórkötlu sem taka á gildi 1. september. Í nýjum samningi við fyrrum eigendur eignanna verður heimild til gistingar í eignum félagsins afmörkuð með skýrari hætti og samkvæmt heimildum mbl.is verður fjöldi nátta á mánuði nú takmarkaður við 12. Fasteignafélagið Þórkatla hóf síðla árs 2024 að bjóða fyrrum eigendum fasteigna í Grindavík aðgengi að eignum sem þeir höfðu selt félaginu með gerð svokallaðs hollvinasamnings og stuttu seinna var hægt að gera viðauka við samninginn sem heimilaði gistingu í eignunum. Segir ríkið glíma við ákvörðunarfælni Gylfi Arnar Ísleifsson, eigandi veitingastaðarins Papas í Grindavík, er einn þeirra sem nýttu sér úrræði Þórkötlu á sínum tíma og vandar fasteignafélaginu ekki kveðjurnar. Hann furðar sig á verkferlum Þórkötlu sem virðist ætla að halda fast í bannið við fastri búsetu í eignum félagsins. „Það er verið að rýra eignir þjóðarinnar með ákvörðunarfælni,“ segir Gylfi í samtali við blaðamann. „Það skilur enginn hvernig ríkið er að tækla Grindavík. Ríkið keypti um 960 eignir hérna í gegnum Þórkötlu. Flestallar eru að skemmast vegna þess að það er enginn í húsunum og þau fá ekkert viðhald. Það eru fleiri tugir húsa hérna sem eru bara ónýt vegna þess að enginn hefur verið þar. Þórkatla hefur ekkert mannafl til að halda utan um öll þessi hús og athuga með þau,“ segir Gylfi. Sjálfur gerði Gylfi hollvinasamning við Þórkötlu á sínum tíma sem gaf honum færi á að sinna almennu viðhaldi á sinni eign. „Ég er í rauninni að gera það fyrir ríkið, svo þau fái eitthvað fyrir húsið þegar þau loksins drullast til að selja okkur eða einhverjum þetta aftur,“ segir hann og ljóst er að hann skefur ekki af hlutunum. Ríkið vilji firra sig ábyrgð Gylfi telur aðdragandann að áframhaldandi búsetureglu Þórkötlu vera að bæjarstjórn Grindavíkur hafi greint frá áformum sínum um að opna skólann aftur í haust. Hann segir líta út fyrir að ríkið beiti Þórkötlu til að koma í veg fyrir að fólk komist heim til sín og firri sig þannig af þeirri ábyrgð sem fylgir því að fólk snúi aftur heim. „Það voru skráð einhver fimmtíu börn í skólann en þau eru bara orðin einhver tuttugu núna út af þessari 12 daga reglu. Það hættu fullt af fjölskyldum við að koma til baka, það nennir enginn að standa í þessu rugli,“ segir Gylfi. Að mati Gylfa er Grindavík orðinn einn öruggasti bær landsins þar sem búið er að skanna og skoða hvern krók og kima bæjarins. „Það eru lúðrar og það er slökkvilið hérna með sólarhringsvaktir og lögregla og ég veit ekki hvað og hvað. En samt einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim.“ Unnið að sprunguviðgerð í Grindavík. Gylfi segir sögur uppi um að ekki eigi að hleypa Grindvíkingum heim á meðan landris á sér stað. mbl.is/Eyþór „Við vorum bara blekkt“ Gylfi segir að enn bóli ekkert á endurkaupaáætlun fasteignafélagsins Þórkötlu sem koma átti út í janúar og gera fyrrum eigendum kleift að kaupa heimili sín til baka. „Við vorum bara blekkt. Svo heyrðum við það að á meðan það er enn landris ætli þeir ekkert að taka neina ákvörðun. Ég er búin að tala við jarðfræðing og það getur verið landris þarna næstu tíu árin. Ætla þeir að halda okkur hérna í þessu rugli bara?” Gert að fjarlægja öryggismyndavélar í eignunum Að lokum furðar Gylfi sig enn frekar á vinnubrögðum Þórkötlu og segir að fyrrverandi eigendum með hollvinasamning hafi verið gert að fjarlægja öryggismyndavélar úr húsum sínum vegna þess að ekki megi mynda starfsfólk Þórkötlu sem einnig hefur aðgang að húsunum. „Í hvaða landi heldur þú það það teljist eðlilegt að gera einhvers konar hollvinasamning og þú ert með þína persónulegu hluti þarna og svo er bara einhver Gunnar frá Þórkötlu alltaf að snuddast inni hjá þér og þarf ekki að láta vita af því eða neitt?“ spyr Gylfi. Hann segir að erfitt sé ná sambandi við fasteignafélagið. “Það er miklu auðveldara fyrir þig að ná í einhvern á Litla-hrauni heldur en þarna.” Tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Atburðarásin eins og í bíómynd Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Vonast til að búið verði í Grindavík Spilin stokkuð upp á nýtt í Grindavik Grindvíkingar mótmæltu fyrir utan Alþingi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Umferð eykst um Hormússund „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Mengunarvarnir Hvals óásættanlegar: Skortir svör Hjörvar Hafliðason vakti mikla athygli á HM Fækkun beiðna áhyggjuefni Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Krefst þess að Ming verði sýknuð af öllum ákærum Börn niður í sjö ára að skoða klám Segir gagnaleka héraðssaksóknara afar óheppilegan Segir Watson vera elítuaktívista Mest lesið Í gær Í vikunni Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Nýjast á mbl.is » Umferð eykst um Hormússund „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Mengunarvarnir Hvals óásættanlegar: Skortir svör Hjörvar Hafliðason vakti mikla athygli á HM Fækkun beiðna áhyggjuefni Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir Watson vera elítuaktívista Tengja kyrkingartak við óútskýrðan heilsubrest Tvö stærstu mál sögunnar: Skoða tengslin Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Mest lesið Í gær Í vikunni Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“