Innlent | mbl | 30.6.2026 | 23:10 Fækkun beiðna áhyggjuefni Slökkviliðsmenn að störfum. mbl.is/Ómar Óskarsson Freyr Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, HMS, hafa borist um 2.800 beiðnir um endurmat á brunabótamati síðan hún tilkynnti fyrir ári síðan að brunabótamat fjölda heimila hér á landi væri vanmetið. Eignir sem HMS endurmat í Grindavík í tengslum við náttúruhamfarirnar þar eru ekki hluti af þessari tölu. Frétt af mbl.is Töluverður fjöldi fólks ekki kveikt á perunni Eftir að stofnunin kynnti Vegvísi að brunabótamati 2025 á ráðstefnu sinni fyrir ári síðan hafði fjöldi fólks samband og óskaði eftir endurmati á brunabótamati. Í apríl síðastliðnum tók þessum beiðnum aftur á móti að fækka umtalsvert og segist Tryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdastjóri fasteignasviðs HMS, ekki vita ástæðuna fyrir því en að fækkunin sé áhyggjuefni. Tryggvi Már Ingvarsson á fundi HMS í byrjun mánaðarins. mbl.is/Hulda Sjö milljóna hækkun Spurður hversu mikið brunabótamatið hækkaði við endurmatið á þessu eina ári segir hann að miðgildi breytinga á íbúðar- og frístundahúsnæði nemi um sjö milljónum króna sem er um 11% hækkun. „Það er erfitt fyrir mig að segja nákvæma tölu um hver breytingin er á heildarbrunabótamati á Íslandi eftir að við réðumst í átakið í kjölfar útgáfu Vegvísis en við áætlum að heildarbreytingin nemi um 20 milljörðum,” segir Tryggvi Már. Slökkviliðsmenn að störfum. mbl.is/Árni Sæberg Fjórfalt fleiri en „þurfum að bæta enn meira í” Á kynningarfundi HMS í byrjun júní vegna fasteignamats fyrir árið 2027 kynnti Tryggvi Már að brunabótamat hefði hækkað um 7,7% á milli ára vegna hækkana á byggingarkostnaði, sem væri talsvert umfram þróun fasteignamats og um 3,3% meira en þróun byggingarvísitölu á sama tíma. Frétt af mbl.is Meiri svartsýni í fréttum en raunveruleikinn sýnir Frétt af mbl.is Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna „Í kjölfar útgáfu Vegvísis og vitundarvakningar um mikilvægi þess að brunabótamat sé rétt í samvinnu við samtök fjármálafyrirtækja og tryggingarfélaga höfum við endurmetið um fjórfalt fleiri eignir síðustu 12 mánuði en við gerðum áður í venjulegu árferði, eða tæplega 2% allra íbúðar- og frístundaeigna á landinu. Ef vel á að vera þurfum við að bæta enn meira í,” kom fram í erindi hans. Reykjavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson Nýtt matskerfi á næsta ári Búið er að stofna samráðshóp að frumkvæði Fjármálaráðuneytisins sem hefur það að markmiði að endurskoða löggjöf og regluverk um brunatryggingar. Jafnframt er gert ráð fyrir að nýtt matskerfi verði tekið í notkun á næsta ári. „Nýtt matskerfi opnar möguleika að aukinni skilvirkni við gerð brunabótamats og bættri upplýsingagjöf til neytanda hvað sé inni í verðmatinu hverju sinni. Eins opnar það möguleika til að miðla upplýsingum til viðbragðsaðila eins og almannavarna og slökkviliðs um byggingarefni og samsetningu mannvirkja,” kom einnig fram í erindi hans. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Mengunarvarnir Hvals óásættanlegar: Skortir svör Hjörvar Hafliðason vakti mikla athygli á HM Fækkun beiðna áhyggjuefni Öfgavinstrisamtök vaxandi vandamál í Þýskalandi Börn niður í sjö ára að skoða klám Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Staða Íslands ekki mjög sterk Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Segir gagnaleka héraðssaksóknara afar óheppilegan Fækkun beiðna áhyggjuefni Mest lesið Í gær Í vikunni Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Nýjast á mbl.is » Mengunarvarnir Hvals óásættanlegar: Skortir svör Hjörvar Hafliðason vakti mikla athygli á HM Fækkun beiðna áhyggjuefni Öfgavinstrisamtök vaxandi vandamál í Þýskalandi Börn niður í sjö ára að skoða klám Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Staða Íslands ekki mjög sterk „Ekkert svigrúm til að gera neitt gott“ Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Mest lesið Í gær Í vikunni Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“