Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur hafnað tilraun Donalds Trump til að afnema lög sem tryggja börnum, sem fæðast í Bandaríkjunum, ríkisborgararétt við fæðingu. Úrskurðurinn er áfall fyrir forsetann, sem vildi breyta einni af grunnstoðum bandarískrar innflytjendastefnu, segir í frétt Financial Times. Með sex atkvæðum gegn þremur felldi Hæstiréttur tilskipun Trumps úr gildi. Hún hefði takmarkað rétt barna sem fæðast í Bandaríkjunum til ríkisborgararéttar ef foreldrar þeirra væru hvorki bandarískir ríkisborgarar né með varanlegt dvalarleyfi. Í 14. viðauka stjórnarskrárinnar segir að allir sem fæðast í Bandaríkjunum eigi rétt á ríkisborgararétti en Trump reyndi að breyta þeirri reglu strax á fyrsta degi þessa kjörtímabils. John Roberts, forseti Hæstaréttar, sagði í meirihlutaálitinu að ríkisborgararéttur væri grundvöllur annarra réttinda og þátttöku í samfélaginu. Með úrskurðinum staðfesti dómstóllinn lög sem hafa verið í gildi frá borgarastyrjöldinni og staðið óhögguð í meira en 125 ár. Úrskurðurinn er enn eitt áfallið fyrir Trump, eftir að Hæstiréttur hafnaði í febrúar stærstum hluta umfangsmikilla tollaaðgerða hans. Dómstóllinn hafnaði einnig tilraun hans til að reka Lisu Cook úr stjórn Seðlabanka Bandaríkjanna í gær, en veitti honum aukið svigrúm til að víkja embættismönnum alríkisstofnana úr starfi. Meirihlutaálit Roberts naut stuðnings dómaranna Amy Coney Barrett og Bretts Kavanaugh, sem bæði voru skipuð í Hæstarétt af Trump. Sjá einnig Trump bannað að reka Cook