- What: Study shows increased public trust in Icelandic institutions
- Impact: Trust in government, police, and courts is higher than OECD average
Traust til stjórnvalda og opinberra stofnana hefur aukist hérlendis og traust til ríkisstjórnar mælist nærri helmingi hærra en að meðaltali í ríkjum OECD. Traust til ríkisstjórnar mældist 59% á Íslandi árið 2025 en aðeins 36% síðast þegar könnunin var gerð 2023. Traust til ríkisstjórna í OECD-ríkjunum mælist að meðaltali 40%. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins . Traust til opinberra aðila mælist meira á Íslandi en að meðaltali OECD í öllum flokkum. Mest mælist traustið til lögreglu, 75% til samanburðar við 63% meðaltal OECD. Könnunin var gerð í þriðja sinn í fyrra frá 2021. Traust til dómstóla og réttarkerfis á Íslandi hefur aukist milli mælinga og er 64%, tíu prósentustigum hærra en að meðaltali í OECD. Traust til Alþingis mælist 52% til samanburðar við 37% meðaltal í OECD, en traust til stjórnmálaflokka mælist almennt heldur lágt í OECD. Það er 29% á Íslandi, þremur prósentustigum hærra en í OECD að meðaltali. Ríflega helmingur Íslendinga, 51%, ber traust til fréttamiðla, en 40% að meðaltali í OECD. 68% íslenskra svarenda sögðust bera traust til opinberra starfsmanna til samanburðar við aðeins 46% að meðaltali í OECD. &&