Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tilkynningum um áreitni og stafræn kynferðisbrot fjölgaði mikið

  • What: Increase in reports of sexual assault and online abuse.
  • Impact: Increased awareness and reporting of sexual crimes.
Read Full Article →

Tilkynningum um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot fjölgaði um 64% og tilkynntum kynferðisbrotum fjölgaði um 9% fyrstu þrjá mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Tilkynningar um vændi nær þrefölduðust í samanburði við meðaltal sama tímabils síðustu þriggja ára þar á undan en tilkynntum nauðgunum fækkaði lítillega milli ára. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra um kynferðisbrot fyrstu þrjá mánuði ársins 2026. Þar segir að á tímabilinu hafi 153 kynferðisbrot verið tilkynnt til lögreglu í samanburði við 140 á sama tíma í fyrra. Tæplega helmingur brotaþola undir 18 ára aldri Í skýrslunni segir að tilkynntar nauðganir fyrstu þrjá mánuði ársins 2026 hafi verið 47 – fjórum færri en á sama tíma í fyrra. Þó geti tölur fyrir nýleg tímabil enn breyst þar sem í hluta mála líði langur tími frá því að brot á sér stað og þangað til það er tilkynnt. Tilkynningum um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot fjölgaði um 64%, úr 28 í 46 milli ára. Þá voru kynferðisbrot gegn börnum 29 talsins eða 16% fleiri en á sama tímabili 2025. Fjöldi tilkynninga um vændi jókst úr 11 málum fyrstu þrjá mánuði ársins 2025 í 19 mál á sama tímabili 2026. Enn fremur þrefaldaðist fjöldi tilkynninga í samanburði við meðaltal sama tímabils síðustu þriggja ára þar á undan. Fram kemur í skýrslunni að sveiflur í þessum flokki megi að hluta til útskýra í ljósi aukinnar áherslu stjórnvalda á skipulagða brotastarfsemi og frumkvæðisvinnu lögreglu frekar en raunbreytingu á tíðni brota. Að því er fram kemur í skýrslu ríkislögreglustjóra voru konur 83% brotaþola í öllum tilkynntum kynferðisbrotum. Hlutfallið var enn hærra í nauðgunarmálum eða 95%. 90% þeirra sem grunaðir voru um kynferðisbrot og 98% grunaðra í nauðgunarmálum á tímabilinu voru karlar. Meðalaldur brotaþola var 24 ár og meðalaldur grunaðra 34 ár. Tæplega helmingur brotaþola var undir 18 ára aldri.

Share this article