Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Krefst þess að Ming verði sýknuð af öllum ákærum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 30.6.2026 | 11:54 Krefst þess að Ming verði sýknuð af öllum ákærum Ming Ting Mancel. mbl.is/Eggert Jóhannesson Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu Fer fram á 16 ára dóm: „Ásetningur kaldur og grimmur“ Sváfu hvorki né borðuðu í tvo sólarhringa Átti erfitt með að horfa á upptökuna Gúggluðu sjálfsvíg og hnífstungur Gaf samstarfsfólki sínu „kveðjugjöf“ » Fleiri tengdar fréttir Ómar Örn Bjarnþórsson, verjandi Ming Ting Mancel, fer fram á að hún verði sýknuð af öllum þeim ákærum sem henni eru gefnar að sök í ákæru ríkisvaldsins. Auk þess sem allur sakarkostnaður verði greiddur úr ríkissjóði. Ming er ákærð fyrir manndráp og brot í nánu sambandi vegna andláts dóttur sinnar, Catherine Mancel, sem hún er sögð hafa banað í samverknaði við eiginmann sinn, Emeric, á Reykjavík Edition-hótelinu í júní á síðasta ári. Hann segir það álitaefni hvort sök verði sönn, hvort tekist hafi að sanna þá háttasemi sem henni er gerð að sök. Í varakröfu er á því byggt að verði henni gerð einhver refsing verði það lágmarksrefsing á grundvelli 213. greinar hegningarlaga sem hljóðar svo: Hver, sem sviptir annan mann lífi fyrir brýna beiðni hans, skal sæta fangelsi allt að 3 árum. Takmarkað vægi játningarinnar Ómar segir að í ákæru sé ekki aðgreint með neinum hætti hvert hlutverk hjónanna var í atburðarásinni á hótelherberginu. Þá segir hann ekkert benda til þess að Catherine, dóttir Ming, hafi verið þvinguð eða neydd til að taka þátt í verknaðinum. Í málflutningi varahéraðssaksóknara, Karls Inga Vilbergssonar, var bent á að Ming Ting hafi játað verknaðinn á vettvangi. Ómar segir takmarkað vægi vera í þeirri játningu, Ming hafi ekki verið með stöðu sakbornings á þeim tíma og hafi verið í lostástandi. Ómar segir Ming hafa lagt sig fram við að greina með sem bestum hætti frá málsatvikum og hafi reynt eftir bestu getu að svara þeim spurningum sem beindar voru að henni. Hún átti sig þó á því að fólk muni ekki skilja hvað fjölskyldunni gekk til. Ómar Örn Bjarnþórsson, verjandi Ming Ting Macel. mbl.is/Eggert Jóhannesson Gagnrýndi skýrslutöku Einnig gagnrýnir Ómar fyrstu skýrslutöku lögreglu sem framkvæmd var á Landspítala skömmu eftir að verknaðurinn átti sér stað. Hún hafi verið lyfjuð auk þess sem skýrslutakan fór fram á ensku sem er ekki hennar móðurmál. Hann nefnir að saksóknari hafi farið fram á að sviðsetja atburðarásina sem átti sér stað á hótelherberginu. Ming átti þar að leika sjálfa sig á móti nemendum úr listaháskólanum þar sem notast átti við gervihnífa. Ming neitaði að taka þátt í því en fór þess í stað í hartnær þriggja klukkustunda skýrslutöku hjá lögreglu og fór aftur yfir málsatvik. DNA Emerics á báðum endum snörunnar Ómar vitnar í krufningsskýrslu og nefnir að þar komi fram að stungan á Ming og stungan á Catherine séu mjög líkar. Hægt sé því að draga þá ályktun að stungan hafi verið framkvæmd af manneskju af sömu stærð og hæð frekar en að um sé að ræða sjálfsáverka í aðra áttina en ekki í hina. Auk þess segir hann það ósennilegt að til átaka hafi komið og vitnar í tölvupósta frá því fólki sem dvaldi í herbergjunum sitt hvoru megin við herbergi Mancel-fjölskyldunnar. Í ákærunni kemur fram að snöru hafi verið brugðið um háls Catherine. Ming hefur sagt í framburði sínum að hún muni ekki til þess að snörunni hafi verið beitt. DNA-rannsókn leiddi í ljós að erfðaefni Ming var að finna á öðrum enda bandsins en erfðaefni Emerics, eiginmannsins, á báðum. Hann segir líkur mega leiða að því að Emeric sé aðalmaður í verknaðinum en segir hlutdeild Mings óljósa. Auk þess sé málið enn til rannsóknar í Frakklandi og því sé það í raun óupplýst. Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu Fer fram á 16 ára dóm: „Ásetningur kaldur og grimmur“ Sváfu hvorki né borðuðu í tvo sólarhringa Átti erfitt með að horfa á upptökuna Gúggluðu sjálfsvíg og hnífstungur Gaf samstarfsfólki sínu „kveðjugjöf“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Krefst þess að Ming verði sýknuð af öllum ákærum Íslenskir neytendur svartsýnir á framhaldið Í fyrsta sinn hjá Þýskalandi Anti-whaling activists target Hvalur hf.'s fuel supplier TrüFrü komið til Íslands: Vinsælt TikTok-nammi nú fáanlegt hér á landi Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sváfu hvorki né borðuðu í tvo sólarhringa Samgöngurnar verið betri í sumar Gúggluðu sjálfsvíg og hnífstungur Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Mest lesið Í gær Í vikunni Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Andlát: Halldór Haraldsson Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu „Þetta hefur verið leiðinlegt ár“ „Þetta eru spennandi tímar“ Gagnaleki héraðssaksóknara rannsakaður Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda Nýjast á mbl.is » Krefst þess að Ming verði sýknuð af öllum ákærum Íslenskir neytendur svartsýnir á framhaldið Í fyrsta sinn hjá Þýskalandi Anti-whaling activists target Hvalur hf.'s fuel supplier TrüFrü komið til Íslands: Vinsælt TikTok-nammi nú fáanlegt hér á landi Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Fer fram á 16 ára dóm: „Ásetningur kaldur og grimmur“ Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Mest lesið Í gær Í vikunni Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Andlát: Halldór Haraldsson Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu „Þetta hefur verið leiðinlegt ár“ „Þetta eru spennandi tímar“ Gagnaleki héraðssaksóknara rannsakaður Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda

Share this article