Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

ESB helmingar innflutningskvóta á stál

Read Full Article →

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur kynnt til leiks innflutningskvóta á stál samkvæmt nýju kerfi sem á að takmarka tollfrjálsan innflutning á stáli til sambandsins. Markmiðið er að verja evrópskan stáliðnað og auka nýtingu framleiðslugetu að sögn Retuers . Samkvæmt nýju reglugerðinni verður árlegur tollfrjáls innflutningskvóti ESB lækkaður um 47%, niður í 18,3 milljónir tonna. Jafnframt verður lagður 50% tollur á innflutning umfram kvóta í 26 flokkum stálvara sem fluttar eru inn til sambandsins. Helmingur kvótans verður eingöngu ætlaður ríkjum sem hafa fríverslunarsamninga við ESB. Hinn helmingurinn verður opinn öllum viðskiptaríkjum, þar á meðal þeim sem þegar njóta fríverslunarsamninga. Framkvæmdastjórnin segir að mörg þessara ríkja fái sérstaka landskvóta í samræmi við fyrra innflutningsmagn þeirra. Þar segir að flest ríki með fríverslunarsamninga við ESB verði því fyrir mun minni skerðingu en 47% meðalskerðingunni sem reglugerðin gerir ráð fyrir. Töluverður fjöldi samstarfsríkja hefur samþykkt þessar úthlutanir til bráðabirgða, að sögn framkvæmdastjórnarinnar. Jafnframt er sagt að reglurnar séu nauðsynlegar til að verja evrópskan stáliðnað gegn umframframleiðslu annars staðar í heiminum og undirboðum. „Viðvarandi umframframleiðslugeta stáliðnaðarins á heimsvísu er alvarlegt vandamál og raskar alþjóðlegum mörkuðum,“ segir framkvæmdastjórnin. Bætt er við að aðgerðinni sé ætlað að endurheimta sanngjarna samkeppni á markaði sem hefur raskast vegna umframframleiðslugetu annars staðar í heiminum.

Share this article