Innlent | Morgunblaðið | 30.6.2026 | 6:00 Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Það tók marga daga að fá leyfi fyrir fjölskylduna til að fara inn í húsið og ná í eigur sínar. Halldóra segist þakklát þeim sem tóku áhættuna. mbl.is/Eyþór Sólveig Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Vonast til að búið verði í Grindavík Spilin stokkuð upp á nýtt í Grindavik Grindvíkingar mótmæltu fyrir utan Alþingi Stökkar próteinflögur tröllríða samfélagsmiðlum Grindvíkingar boða til mótmæla fyrir utan Alþingishúsið » Fleiri tengdar fréttir Halldóra Birta Viðarsdóttir er ein þeirra sem fylgjast nú með niðurrifi fasteignar sinnar í Grindavík, en fjölskyldan bjó í gömlu bárujárnshúsi við Víkurbraut. Víkurbrautin hefur farið sérstaklega illa í jarðhræringunum á svæðinu, en gatan liggur á sprungusvæði og voru húsin mörg hver orðin gömul er náttúruhamfarirnar hófust árið 2023. Reykvíkingurinn Halldóra flutti á sínum tíma til Grindavíkur með manninum sínum og settust þau að á miðhæð hússins, en húsið var í eigu tengdafjölskyldu hennar. „Langafi mannsins míns byggði þetta hús á sínum tíma. Maðurinn minn hefur búið á öllum hæðum hússins á einhverjum tímapunkti í lífinu og ólst upp á neðstu hæðinni,“ segir Halldóra, en eins og gefur að skilja hefur húsið mikið tilfinningalegt gildi. Aðspurð segir Halldóra það hafa verið skrítið að flytja úr borg í bæ en Grindavík hafi fljótt unnið hjarta hennar. „Þetta var auðvitað bara æðislegt samfélag. Það er rosalega öflugt íþróttastarf í Grindavík og allir þekkja alla,“ segir Halldóra. Skildu allt eftir Grindavíkurbær var rýmdur þann 10. nóvember 2023 þegar stór kvikugangur myndaðist undir bænum. Atburðarásin var hröð og á aðeins nokkrum klukkutímum var íbúum bæjarins gert að yfirgefa heimili sín hið snarasta. „Ég held að margir hafi orðið mjög hræddir. Sjálf varð ég mjög hrædd og sá bara fyrir mér einhverjar hamfarir, gos innan bæjarins og þess háttar,” segir Halldóra. Á leið sinni út úr bænum með börnin sín fer Grindavíkurvegur í sundur vegna jarðhræringa og Halldóra varð að finna sér aðra leið. „Þetta var bara eins og í einhverri bíómynd. Mér leið eins og ég væri að keyra í hávaðaroki en það var bara smá gola úti. Þetta sem við heyrðum voru jarðskjálftar og maður sveiflaðist bara til á veginum.” Leiðin lá í miðbæ Reykjavíkur þar sem fjölskyldan fékk íbúð að láni og fljótlega síðar fluttist hún út á Seltjarnarnes, þar sem hún býr enn. Tveimur dögum eftir rýmingu var Grindvíkingum hleypt heim til sín til að sækja það allra nauðsynlegasta. „Þá sáum við hversu skemmt húsið okkar var. Við máttum ekki fara inn nema í fylgd með rústabjörgunarsveit og það þurfti að skipuleggja það sérstaklega. Finna þurfti sérhæfða menn sem voru tilbúnir að taka áhættuna á að fara þarna inn,“ segir Halldóra, en mikil óvissa ríkti um burðarþol hússins. Það tók hátt í viku fyrir fjölskylduna að fá leyfi til þess að fara inn í húsið. „Við fengum ekki að taka neina stóra hluti með okkur en við höfðum bara 20 mínútur til þess að sækja eigurnar okkar. Við erum ótrúlega þakklát því fólki sem treysti sér til að hjálpa ókunnugu fólki að ná í dótið sitt,“ segir Halldóra. Biðin reyndist erfið Halldóra segir að biðin eftir því að tekin yrði ákvörðun um framtíð hússins hafi reynst erfið, sem og biðin eftir niðurrifi eftir að ákvörðunin var tekin. Hún segist eiga erfitt með að koma tilfinningunum í orð en að hún hafi upplifað ákveðna innrás í einkalíf fjölskyldunnar þegar niðurrifið hófst. „Við bjuggum kannski ekki enn þá þarna en þetta er samt heimili okkar. Við vorum ekki búin að kveðja það eins og maður gerir þegar maður flytur. Við náðum rétt að taka það sem hægt var að setja í poka og töskur, hitt varð allt eftir. Húsið skekktist svo mikið að það var ekki hægt að loka útidyrahurðinni heldur, það stóð bara allt opið inn til okkar. Það var erfiðasti hlutinn.“ Hún lýsir því hvernig hún hafi verið ákveðin í að fylgjast með niðurrifinu og að það hafi reynst mikilvægur hluti af sorgarferlinu. „Þegar ég fór að horfa á niðurrifið blasti við mér opið herbergi sonar míns og þá bara brotnaði ég niður. Það stingur sérlega mikið að hafa alið börnin sín upp í þessu húsi,“ segir Halldóra. Að sögn Halldóru snýst mesta sorgin um það sem aldrei verður. „Samfélagið sem krakkarnir okkar fá ekki að upplifa. Að fá ekki að búa áfram á fallega heimilinu okkar. Í sömu viku og rýmingin hófst hafði maðurinn minn opnað sjúkraþjálfunarstofu í bílskúrnum okkar og eytt miklum tíma í að gera hana upp. Það er margt sem er svo svekkjandi og erfitt að yfirstíga.“ Gott á Seltjarnarnesi Halldóra segir jákvæða þráðinn í þessu öllu saman hversu vel fari um fjölskylduna á Seltjarnarnesi. „Krakkarnir eru að standa sig ótrúlega vel. Maður hefði eiginlega ekki trúað því hversu vel þau dafna hérna. Við erum ótrúlega heppin að hafa lent hér,“ segir hún að lokum. Að fylgjast með niðurrifi herbergis sonarins reyndist Halldóru erfitt. Halldóra Birta Viðarsdóttir Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Vonast til að búið verði í Grindavík Spilin stokkuð upp á nýtt í Grindavik Grindvíkingar mótmæltu fyrir utan Alþingi Stökkar próteinflögur tröllríða samfélagsmiðlum Grindvíkingar boða til mótmæla fyrir utan Alþingishúsið » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Með kylfur í hendi og mikið magn fíkniefna Hitinn gæti náð 20 stigum Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna frímúrurum að verða kaþólikkar Andlát: Halldór Haraldsson Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Gúggluðu sjálfsvíg og hnífstungur Átti erfitt með að horfa á upptökuna Áliti borgarlögmanns stungið ofan í skúffu Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta eru spennandi tímar“ Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu Langþráð reglugerð um lyfjaakstur á næstu grösum Sváfu hvorki né borðuðu í tvo sólarhringa Samgöngurnar verið betri í sumar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Átti erfitt með að horfa á upptökuna Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Slysið varð í brattri hlíð Hugmyndir Evrópusambandsins óspennandi Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Rúður sprungu í 400 gráðu hita Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda Nýjast á mbl.is » Með kylfur í hendi og mikið magn fíkniefna Hitinn gæti náð 20 stigum Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna frímúrurum að verða kaþólikkar Andlát: Halldór Haraldsson Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Gaf samstarfsfólki sínu „kveðjugjöf“ „Þetta eru spennandi tímar“ Átti erfitt með að horfa á upptökuna Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta eru spennandi tímar“ Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu Langþráð reglugerð um lyfjaakstur á næstu grösum Sváfu hvorki né borðuðu í tvo sólarhringa Samgöngurnar verið betri í sumar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Átti erfitt með að horfa á upptökuna Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Slysið varð í brattri hlíð Hugmyndir Evrópusambandsins óspennandi Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Rúður sprungu í 400 gráðu hita Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda