Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Höfðu hendur í hári þjófa

  • What: Two foreign suspects arrested for repeated store thefts
  • Impact: Crime investigation in the northern region
Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 30 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Höfðu hendur í hári þjófa Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Lögreglan á Norðurlandi vestra handtók um helgina tvo erlenda menn sem grunaðir eru um ítrekaðan þjófnað úr verslunum í umdæminu. Við húsleitir í híbýlum þeirra fannst þýfi og lítið magn af fíkniefnum. Embætti lögreglustjórans á Norðurlandi vestra fer með rannsókn málsins, að því er segir í tilkynningu lögreglunnar á Facebook. Mynd/Bjarni Rúnarsson Fyrir 42 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Reglu­gerð um lyfja­akst­ur vænt­an­leg Stefnt er að því að reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis vegna neyslu lyfja taki gildi í sumar. Lögmaður kallaði í morgun eftir því að öll slík mál síðustu sex og hálft ár yrðu endurskoðuð. Fyrir 48 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Telur net­versl­un með áfengi ólög­lega Fjármálaráðuneytið telur netverslun með áfengi ólöglega. Niðurstöðu fyrir dómstólum er beðið. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti Vals­menn leggja eigin þjálf­ara­kap­al — Her­mann rekinn Hermann Hreiðarsson hefur verið rekinn sem þjálfari Vals í efstu deild karla í fótbolta. Aðstoðamaður hans Chris Brazell mun stýra liðinu út tímabilið. Halldór Árnason tekur við liðinu að tímabili loknu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti Þriðj­ung­ur skráðra öku­tækja á Ís­landi með óvirkt neyð­ar­hringi­kerfi Eftir að slökkt var á 2G og 3G sendum landsins eru um 120.000 ökutæki sem geta ekki hringt sjálfvirk neyðarsímtöl. Óvíst er hvort hægt sé að uppfæra kerfi bílanna og ef það er hægt hleypur kostnaður á hundruðum þúsunda. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Band­ero ekki komist í nálægð við Hval 8 og Hval 9 Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, hefur ekki haft uppi á hvalveiðiskipum Hvals hf. og ekki er vitað að fullu hvert leiðin liggur segir upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Varðskip gæslunnar fylgir skipinu eftir vestur af landinu. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Fimm drepn­ir í skot­árás í Þýska­landi Fimm eru látnir eftir skotárás í bæ í norðurhluta Þýskalands. Tveir hafa verið handteknir, þar á meðal grunaður árásarmaður. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Björg­uðu slös­uð­um göngu­manni úr brattri hlíð við krefj­andi að­stæð­ur Björgunarsveitir sóttu slasaðan göngumann í bratta hlíð við Hólmavatn á Hegranesi á laugardagskvöld. Flytja þurfti manninn í sjúkrabörum yfir vatnið með slöngubát. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Víða iðja­grænt eftir góða sprettu Gróðurspretta hefur verið einstaklega góð þetta árið á höfuðborgarsvæðinu. Yfirverkstjóri Ræktunarstöðvar Reykjavíkurborgar segir uppskeru sumarblóma gjöfula. Í trjásafninu í Meltungu blómgaðist skrauteplatré í fyrsta sinn í 15 ár. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Fjórir nú­ver­andi og fyrr­ver­andi lög­reglu­stjór­ar vilja vera yfir höf­uð­borg­ar­svæð­inu Sex sóttu um starf lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Þar af eru fjórir núverandi og fyrrverandi lögreglustjórar. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Eurovision Kanada gæti tekið þátt í Euro­vi­sion Kanadíska ríkisútvarpið er orðið fullgildur meðlimur í Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva. Kanada gæti þar með orðið fjórða ríkið utan Evrópu til að taka þátt í Eurovision. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Héraðsdómur Catherine bað um frí með litlum fyr­ir­vara og gaf sam­starfs­fólki gjafir Ming Ting Mancel er ákærð fyrir að hafa orðið Catherine dóttur sinni að bana í samverknaði við eiginmann sinn á Edition-hótelinu í fyrra. Catherine lýsti ekki efasemdum um Íslandsferðina, segir yfirmaður hennar sem gaf skýrslu fyrir dómi í dag. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Pútín við­ur­kenn­ir ol­íu­skort í fyrsta sinn Vladimír Pútín Rússlandsforseti viðurkenndi í fyrsta sinn í gær að nokkur olíuskortur væri í Rússlandi. Úkraínumenn hafa gert miklar árásir á olíuinnviði Rússa. Pútín hafnar því að setjast að samningaborðinu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Héraðsdómur Ólík­legt að að­al­með­ferð klárist í dag Héraðssaksóknari á ekki von á að aðalmeðferð í Edition-málinu klárist í dag. Ýmislegt eigi enn eftir að rannsaka. Kona er ákærð fyrir manndráp og brot í nánu sambandi. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Malasía Leit­inni að MH370 fram haldið í ár í viðbót Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Yfirvöld í Malasíu hafa framlengt leit að Boeing 777 flugvél Malaysia Airlines, MH370, um ár til viðbótar. Rúm 12 ár eru síðan flugvélin hvarf er hún var á leið frá Kuala Lumpur til Beijing í Kína, 8. mars 2014. Þrátt fyrir stærstu leitaraðgerð í flugsögunni hefur vélin enn ekki fundist. Samgönguráðherra Malasíu tilkynnti í dag að samningur við fyrirtækið Ocean Infinity yrði framlengdur til 30. júní 2027. Samningurinn kveður á um að fyrirtækið fái 70 milljónir bandaríkjadala hafi það uppi á braki flugvélarinnar. Takist það ekki fær fyrirtækið ekkert greitt. Flestir farþegar vélarinnar voru kínverskir. EPA Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Bras­il­ía og Þýska­land hefja leik í út­slátt­ar­keppni Í dag eru tveir leikir á dagskrá í 32-liða úrslitum HM karla í fótbolta. Brasilía og Japan mætast í fyrri leik dagsins og Þýskaland og Paragvæ í þeim seinni. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Vill end­ur­skoða öll mál sex og hálft ár aftur í tímann Landsréttur sýknaði ökumann sem keyrði bíl undir áhrifum lyfja sem læknir hafði ávísað honum. Enginn ráðherra hefur sett reglugerð um hve mikil áhrifin megi vera áður en ökumaður er vanhæfur til að stýra bíl. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Þór fylgir Band­ero á sigl­ingu í ís­lenskri lög­sögu Varðskip Landhelgisgæslunnar fylgir Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna, á siglingu í íslenskri lögsögu. Samtökin hafa hótað því að stöðva hvalveiðiskip Hvals hf. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópa Minnst 1.300 látin í hita­bylgju Fjölda andláta í Evrópu undanfarna viku má rekja beint til hitabylgjunnar sem gengur yfir álfuna. Í Frakklandi hefur þeim fjölgað um 40% sem finnast látin heima hjá sér. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Áfram­hald­andi vætu­tíð Það verður sérstaklega skúrakennt norðaustantil og væta í flestum landshlutum. Það er von á áframhaldandi vætutíð fram eftir vikunni. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Hand­tek­inn fyrir að aka raf­hlaupa­hjóli undir áhrif­um Grétar Þór Sigurðsson Sjö voru vistaðir í fangageymslu í morgunsárið. RÚV / Alexander Kristjánsson Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöld eða nótt tilkynning um umferðarslys í póstnúmeri 108 þar sem bíll endaði utan vegar og ökumaðurinn flúði vettvang. Í dagbók lögreglu fylgir ekki sögunni hvort henni hafi tekist að hafa uppi á ökumanninum. Í póstnúmeri 110 slösuðust þrír í umferðarslysi þar sem draga þurfti bíla af vettvangi. Í Garðabæ var sextán ára ökumaður kærður fyrir að aka bíl enda ekki kominn á bílprófsaldur. Í Kópavogi var ökumaður kærður fyrir að aka um á nagladekkjum. Þá var einn handtekinn fyrir að stjórna rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis í Grafarvogi. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leiklist Innlit á æfingu söng­leiks­ins Með allt á hreinu Sviðslistahúsið Afturámóti setur nú upp söngleikinn Með allt á hreinu. Kíkt var á æfingu hjá leikhópnum á dögunum. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Stærsta ol­íu­hreinsi­stöð Ven­esú­ela án raf­magns um tíma Grétar Þór Sigurðsson Húsarústir í strandbænum Caraballeda í La Guaira-héraði sem varð einna verst úti í skjálftunum á miðvikudag. AP/POOL AFP / Miguel Medina Rafmagn er aftur komið á Amuay-olíuhreinsistöðina, sem er stærsta olíuhreinsistöð í Venesúela. Hún var um tíma óstarfhæf vegna rafmagnsleysis á sunnudag sem rekja má til tveggja stórra jarðskjálfta sem skuku landið á miðvikudagskvöld. Erfiðlega hefur gengið að tryggja framboð rafmagns til stórnotenda í landinu eftir skjálftana. Þá hefur vatnsskortur einnig sett strik í reikninginn, meðal annars í olíuhreinsistöðinni. Olíuhreinsistöðin gegnir mikilvægu hlutverki við dreifingu eldsneytis innan landsins. 29. júní 2026 kl. 4:06ERLENDAR FRÉTTIR Vanúatú Erlend ríki fá ekki að reisa her­stöðv­ar á Van­úatú Ástralir og Bandaríkjamenn hafa haft áhyggjur af því að Kínverjar vilji koma sér upp flotastöð á Vanúatú, eyríki í Suður-Kyrrahafi. Ástralir skuldbinda sig til að veita Vanúatú aukinn efnahagslegan stuðning með nýjum samningi ríkjanna. 29. júní 2026 kl. 2:50ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Banda­rík­in og Íran gera hlé á árásum og ætla að halda við­ræð­um áfram Óttast hefur verið um afdrif viljayfirlýsingar ríkjanna um friðarsamkomulag eftir að þau skiptust á árásum á síðustu dögum. Viðræður milli þeirra halda áfram í Katar á þriðjudag. 29. júní 2026 kl. 1:41ERLENDAR FRÉTTIR Afganistan Pakist­an gerir loft­árás­ir í Afgan­ist­an Pakistanskur ráðherra segir 29 hafa fallið í nákvæmum árásum sem beindust gegn þremur skotmörkum. Stjórnvöld í Afganistan segja almenna borgara í hópi fallinna og særðra. 29. júní 2026 kl. 0:40ERLENDAR FRÉTTIR Miðausturlönd Þing­for­seti Líban­ons segir sam­komu­lagi við Ísrael ekki verða hrint í fram­kvæmd Þríhliða samkomulag milli Líbanons, Ísraels og Bandaríkjanna var undirritað á föstudag. Markmiðið með því var að tryggja frið í Líbanon. Þingforseti landsins segir samkomulagið ekki tryggja réttindi Líbanons. 28. júní 2026 kl. 23:42INNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Þriggja bíla árekst­ur við Gull­in­brú Grétar Þór Sigurðsson Grafarvogur og Gullinbrú. RÚV / Ragnar Visage Einn var fluttur til skoðunar á slysadeild eftir árekstur við Gullinbrú í Reykjavík í kvöld. Þrír bílar urðu fyrir tjóni í árekstrinum að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu. Tilkynning um slysið barst á tíunda tímanum í kvöld. Þá var einn dælubíll frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu sendur í Vesturbæinn í Reykjavík eftir tilkynningu frá vegfaranda sem heyrði í reykskynjara og fann brunalykt. Í ljós kom að um eldamennsku var að ræða. 28. júní 2026 kl. 23:22ERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Tveim­ur drengj­um bjarg­að úr húsa­rúst­um í Ven­esú­ela Tugum hefur verið bjargað á lífi úr húsarústum í Venesúela um h

Share this article