- What: South Korea announces a $88 billion investment in semiconductor and AI technology
- Impact: Major tech companies and global supply chains may be affected
Suðurkóresk yfirvöld hafa tilkynnt gríðarlega stóra fjárfestingaráætlun með það í huga að efla örgjörvaframleiðslu og gervigreindartækni á næstu árum. Á vef BBC segir að upphæðin nemi 880 milljörðum dala. Fjárfestingin er hluti af verkefni sem ber heitið Three Mega Projects en það verkefni snýr að uppbyggingu nýrra framleiðslumiðstöðva fyrir örgjörva, gagnaver og vélmenni. Lee Jae-myung, forseti Suður-Kóreu, greindi frá áætluninni ásamt forstjórum Samsung og SK Hynix, stærstu örgjörvaframleiðendum landsins. Suður-Kórea er ekki eina landið í álfunni þegar kemur að tæknifjárfestingum en Kína, Taívan og Japan hafa fjárfest mikið í örgjörvaverksmiðjum og annarri tækni til að anna eftirspurn vegna þróunar á gervigreind.