Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Upplýsingar skortir um heimilisleysi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 19.2.2026 | 11:41 Upplýsingar skortir um heimilisleysi Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir að Ísland standi eftir á í samanburði við Norðurlöndin þegar kemur að viðbrögðum stjórnvalda í málefnum heimilislausra. Þetta sagði hann á opnum fundi um heimilisleysi á Íslandi sem haldinn var í húsakynnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar í morgun en á fundinum var fjallað um heimilisleysi á Íslandi, hver staðan er og hvað hefur verið gert. Ragnar segir að Norðurlöndin hafi sett skýra stefnu um heimilisleysi á grundvelli hugmyndafræðinnar húsnæði fyrst, eða „Housing first“, hugmyndafræði sem upphaflega má rekja til Bandaríkjanna en Finnar hafi undanfarin 20 ár verið leiðandi í að þróa hana áfram og að verið sé að vinna eftir henni víða um Evrópu. Legg höfuðáherslu á húsnæðismálin „Sem félags- og húsnæðisráðherra mun ég leggja höfuðáherslu á húsnæðismálin sem ætti ekki að koma neinum á óvart, komandi úr verkalýðshreyfingunni þar sem bæði með lífskjarasamningum og í samningunum 2015 hafi þetta verið höfuðáherslur okkar enda húsnæðismálin langstærsta kjaramál samtímans,“ segir Ragnar. Ragnar segist hafa komið að uppbyggingu húsnæðisfélaga eins og Bjargs og Blævar og hafi komið að vinnu stjórnvalda, átakshópa og aðgerðarhópa síðustu ár meðal annars með gerð hlutdeildarlánanna á sínum tíma sem voru endurbætt fyrir jólin. Hann segir að þegar sé farinn að sjást árangur sem hlutdeildarlánunum var ætlað að vera, meira framboðsdrifin heldur en eftirspurnardrifin. „Við skrifuðum undir fyrsta samninginn við verktaka í þar síðustu viku þar sem byggja á um 400 íbúðir í hjarta Hafnarfjarðar, sem annars hefðu ekki farið af stað, og af þeim verða um þriðjungur íbúða fyrir fyrstu kaupendur og inn í hlutdeildarlánakerfið,“ segir hann. Finnar leiðandi afl Ragnar segist sjá mikil tækifæri til að nýta slagkraftinn í málaflokknum til að vinna með samstilltari og skipulagðari hætti í málefnum heimilislausra en þar hafi Reykjavíkurborg verið leiðandi afl undanfarin ár og hafi meðal annars unnið að því að taka upp Housing first-hugmyndafræðina á þessu sviði. Hann segir að Finnar hafi verið leiðandi afl í hugmyndafræðinni um „Housing first“. „Finnar eru komnir gríðarlega langt á þessu sviði og það er margt sem við Íslendingar og aðrar þjóðir getum lært af þeim enda hafa þeir sett sér það skýra markmið að útrýma heimilisleysi í landinu og hafa verið að vinna að því statt og stöðugt undanfarna tvo áratugi,“ segir hann. Skortir betri upplýsingar á landsvísu Ragnar segir að fyrir liggi að hér á landi skorti betri upplýsingar á landsvísu um heimilisleysi en helst megi finna stöðu um heimilisleysi hjá Reykjavíkurborg eins og staðan sé núna. Hann segir að úr því þurfi að bæta. „Ríkisstjórnin birti í lok október sinn fyrsta aðgerðarpakka í húsnæðismálum og í framhaldi munum við á komandi vikum og mánuðum kynna frekari aðgerðir til bæta húsnæðisöryggi fólks og auka stöðugleika á húsnæðismarkaði bæði til skemmri og lengri tíma,“ segir Ragnar. Hann segir í því samhengi verði lögð rík áhersla á að koma á nánari samstarfi stjórnvalda þannig að ríki og sveitarfélög gangi samstilltari til verka til að auka framboð íbúða fyrir fólk með ólíkar þarfir. Ragnar segir að þegar sé hafið samtal á milli stjórnvalda um endurskoðun rammasamnings ríkis og sveitarfélaga um íbúðauppbyggingu. „Það er mér sönn ánægja að tilkynna hér að ég hyggst sem ráðherra halda áfram þeirri vinnu sem aðgerðarhópurinn hóf með því að setja stefnu á landsvísu um málefni þeirra sem búa við heimilisleysi eða aðrar óviðunandi húsnæðisaðstæður undir formerkjum hugmyndafræðinnar , húsnæði fyrst.“ Þetta þarf lögreglan að sanna í máli Andrews Beint: Mánaðarskýrsla HMS kynnt Ísland á sérstakan stað í hjarta Vonn Upplýsingar skortir um heimilisleysi Keppinautar neituðu að haldast í hendur Bjartari tímar fram undan Til hamingju Framsókn Fleira áhugavert Friðarviðræður í Genf: „Hvað vilja þeir?“ Piparúða beitt gegn ungum dreng Jakobína mætt aftur 70 árum síðar Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Samfylkingin ekki lengur stærst Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Ætla að lýsa Eurovision beint úr Efstaleiti Umferðarslys við Rauðavatn í nótt Tvöföld veikindi hjá því opinbera Piparúðanum var beitt í Neðra-Breiðholti 74% íbúða seldust á undirverði Flestir hafa áhyggjur: Snúa aftur til staðprófa Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Telur skólann vera að bregðast syni sínum Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Þetta þarf lögreglan að sanna í máli Andrews Beint: Mánaðarskýrsla HMS kynnt Ísland á sérstakan stað í hjarta Vonn Upplýsingar skortir um heimilisleysi Keppinautar neituðu að haldast í hendur Bjartari tímar fram undan Til hamingju Framsókn Fleira áhugavert Friðarráð Trumps fundar í fyrsta sinn Veita undanþágur vegna líkbrennslu Gæti snjóað lítillega á höfuðborgarsvæðinu Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Samfylkingin ekki lengur stærst Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Ætla að lýsa Eurovision beint úr Efstaleiti Umferðarslys við Rauðavatn í nótt Tvöföld veikindi hjá því opinbera Piparúðanum var beitt í Neðra-Breiðholti 74% íbúða seldust á undirverði Flestir hafa áhyggjur: Snúa aftur til staðprófa Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Telur skólann vera að bregðast syni sínum Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article