Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Keflavík lagði KR á heimavelli

Read Full Article →

Keflavík heimsótti KR og þar skoruðu bæði liðin með einnar mínútu millibili snemma í fyrri hálfleik. Fyrst var það Arnór Ingvi Traustason sem skoraði á 10. mínútu eftir stoðsendingu Arons Sigurðarsonar. Mínútu síðar jafnaði Marin Mudrazija fyrir Keflavík eftir undirbúning Muhamed Alghoul, 1-1, og þannig stóð einnig í leikhléi. Aftur skoruðu liðin hvort sitt markið í upphafi seinni hálfleiks. Marin Mudrazija bætti við sínu öðru marki á 52. mínútu en Eiður Gauti Sæbjörnsson jafnaði á 55. mínútu, 2-2. Alpha Bedor Conteh skoraði svo glæsilegt sigurmark fyrir Keflavík á 89. mínútu og 3-2 urðu lokatölur. KR er enn í öðru sæti með 28 stig og Keflavík er áfram í sjöunda sæti. Sigurinn kom í lokin Þór og Valur áttust við fyrir norðan en það voru gestirnir sem byrjuðu betur. Markus Nakkim gerði vel því hann hafði komið Valsmönnum í 2-0 á 38. mínútu. Þannig stóð í hálfleik en Þórsarar jöfnuðu metin með tveimur mörkum um miðjan seinni hálfleik frá Ingimari Arnari Kristjánssyni og Kristófer Kristjánssyni, 2-2. Albin Skoglund kom Völsurum þó aftur yfir með marki á 88. mínútu og Tryggvi Hrafn Haraldsson jók forskotið í blálokin, 4-2 sigur Vals varð niðurstaðan. Jafntefli hjá FH og ÍBV FH-ingar fengu Eyjamenn í heimsókn. Heimamenn komust yfir á 12. mínútu með skallamarki Úlfs Björnssonar eftir hornspyrnu Kjartans Halldórssonar. Omar Sowe jafnaði svo snemma seinni hálfleiks fyrir ÍBV eftir mistök Jökuls Andréssonar í marki FH, 1-1. Það urðu einnig lokatölur. FH situr í fallsæti með sjö stig. Stjarnan sótti dýrmæt stig Loks mættust Stjarnan og KA í Garðabæ. Emil Atlason kom Stjörnumönnum yfir á 18. mínútu og þremur mínútum síðar tvöfaldaði Benedikt Warén forystu liðsins. Staðan í hálfleik var 2-0 en Hallgrímur Mar Steingrímsson minnkaði muninn fyrir KA á 51. mínútu en lengra komust þeir ekki og 2-1 sigur Stjörnunnar varð niðurstaðan. Stjarnan hefur átt erfitt uppdráttar í upphafi tímabilsins. Jón Þór Hauksson tók við liðinu á dögunum. Liðið náði sér í sitt fjórtánda stig með sigrinum.

Share this article