Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Segir niðurstöðu Ríkisendurskoðunar sláandi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 27.6.2026 | 21:16 Segir niðurstöðu Ríkisendurskoðunar sláandi Ingibjörg segir niðurstöðu úttektarinnar staðfesta upplifun foreldra barna með sérstakar þarfir. Morgunblaðið/Eggert Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Ríkið sagt svíkja samkomulag Segja ríkið ganga á bak orða sinna „Okkur langaði að hjálpa allavega einu barni“ Ráðuneytið bregst við skýrslunni Fóru of geyst í innleiðingu laganna » Fleiri tengdar fréttir Ingibjörg Einarsdóttir, móðir sem leitaði með son sinn til Suður-Afríku í fíknimeðferð vegna úrræðaskorts hérlendis, segir niðurstöður úttektar Ríkisendurskoðunar á innleiðingu laga um farsæld barna vera sláandi, þar sem ljóst sé að ríkið geti ekki uppfyllt meginmarkmið laganna. Þessu greinir hún frá í aðsendri grein á Vísi . „Þegar farsældarlögin voru samþykkt árið 2021 voru þau kynnt sem tímamót í þjónustu við börn. Markmiðið var göfugt: að tryggja að börn og foreldrar fengu samþætta þjónustu við hæfi, án hindrana. Fáir myndu deila um mikilvægi þess markmiðs.“ „Nú, rúmum fjórum árum síðar, hefur Ríkisendurskoðun birt úttekt á innleiðingu laganna. Niðurstaðan er sláandi. Þótt samvinna milli kerfa hafi aukist og nýtt verklag verið innleitt telur Ríkisendurskoðun ekki að forsendur séu til staðar til að ná meginmarkmiði laganna,“ skrifar Ingibjörg. Komi ekki á óvart Ingibjörg segir niðurstöðu úttektarinnar ekki koma á óvart. Foreldrar barna með geðrænan vanda, taugaþroskaraskanir, fötlun eða vímuefnavanda hafa kallað eftir breytingum og bættri þjónustu árum saman og beðið eftir úrræðum sem ekki séu til sökum langra biðlista. „Skýrsla Ríkisendurskoðunar staðfestir þessa reynslu. Hún bendir á að farsældarlögin séu fyrst og fremst samvinnulög. Þau bæta samskipti milli kerfa en fjölga hvorki sálfræðingum, stytta biðlista né skapa ný meðferðarúrræði. Þegar þjónustan er ekki til staðar verður samþætting hennar innantóm. Sérstaklega vekur athygli að Ríkisendurskoðun telur stöðu þeirra barna sem þurfa mestan stuðning óviðunandi. Þar eru nefnd börn með fjölþættan vanda, börn með vímuefnavanda, fósturbörn og fötluð börn. Með öðrum orðum: þau börn sem síst mega við því að falla á milli kerfa,“ skrifar Ingibjörg. Hún segir þó að þrátt fyrir allt sem skýrslan sýni fram á, sé alvarlegast að enn hafi ekki verið skilgreindir mælikvarðar sem sýni hvort lögin hafi skilað tilætluðum árangri. Tvöfalt siðferði ríki Ingibjörg segir hugmyndafræði laganna góða en að það sé þó einfaldlega ekki nóg til þess að tryggja börnum sem þurfa hvað mest á stuðningi að halda, viðeigandi þjónustu. „Á meðan fólk safnast saman til að mótmæla velferð annarra barna eru börnin okkar bókstaflega að deyja. Samt virðist enginn rísa upp og mótmæla því. Í mínum huga er það tvöfalt siðferði.“ „Stjórnmálamenn halda áfram að gefa innistæðulausar yfirlýsingar en ábyrgðin er enn óljós. Börnum með fjölþættan vanda er kastað á milli ríkis og sveitarfélaga eins og heitri kartöflu. Á meðan versnar staða barnanna og fjölskyldna þeirra með hverjum deginum.“ Ingibjörg Einarsdóttir. Ljósmynd/Aðsend Fái litla sem enga aðstoð Ingibjörg bendir á að þrátt fyrir fögur loforð stjórnmálamanna sé staðan enn afar slæm. Geðheilbrigðiskerfið nái aðeins til lítils hluta þeirra barna sem þurfa á þjónustu að halda og að enn bíði yfir 650 börn eftir einhverfugreiningu og um 2500 börn eftir öðrum greiningum. „Reynslan hefur sýnt mér að hvorki ríkið né sveitarfélagið rétta foreldrum barna sem eru bókstaflega að drukkna björgunarkút. Þvert á móti er upplifunin sú að í stað hjálpar sé kastað steinum í mann á meðan maður reynir af öllum mætti að bjarga lífi barnsins síns.“ „Þrátt fyrir að lög kveði skýrt á um skyldu ríkis og sveitarfélaga til að veita þessa þjónustu virðist allt gert eins erfitt og mögulegt er. Foreldrar sem eru að berjast fyrir lífi barna sinna fá ekki aðeins litla sem enga aðstoð heldur standa oft eftir einir, örmagna og án þess stuðnings sem þeir eiga rétt á. Þegar maður svo missir heilsuna sjálfur vegna álags fær maður heldur enga hjálp til að rísa á fætur aftur,“ skrifar Ingibjörg. Frétt af mbl.is Ríkið sagt svíkja samkomulag Frétt af mbl.is Fóru of geyst í innleiðingu laganna Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Ríkið sagt svíkja samkomulag Segja ríkið ganga á bak orða sinna „Okkur langaði að hjálpa allavega einu barni“ Ráðuneytið bregst við skýrslunni Fóru of geyst í innleiðingu laganna » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Segir niðurstöðu Ríkisendurskoðunar sláandi 91 árs á sínu 18. heimsmeistaramóti Panama – England, staðan er 0:0 Heppinn áskrifandi vann 2,5 milljónir Evrópumeistararnir leiða kapphlaupið Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Útboð að hefjast í rannsóknahúsinu Heimsbyggðin réttir Venesúela hjálparhönd Skip Watsons komið inn fyrir 200 mílurnar Hefur ekki áhyggjur af fjölgun kínverskra ferðamanna Mest lesið Í gær Í vikunni Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Trump í Skagafirði Eitt flóknasta niðurrifsverkefni Íslandssögunnar Quang Lé stofnar flutningafyrirtæki Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum ESB leggur á nýtt gjald Stenst ekki skoðun Deila um hvort kæra eigi sendiboða sem benti á öryggisveikleika „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Nýjast á mbl.is » Segir niðurstöðu Ríkisendurskoðunar sláandi 91 árs á sínu 18. heimsmeistaramóti Panama – England, staðan er 0:0 Heppinn áskrifandi vann 2,5 milljónir Evrópumeistararnir leiða kapphlaupið Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skip Watsons komið inn fyrir 200 mílurnar Útboð að hefjast í rannsóknahúsinu Þjóðaratkvæði, þjóðargrafreitur og milljarðarnir í boltanum Gæslan viðbúin komu Pauls Watsons Mest lesið Í gær Í vikunni Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Trump í Skagafirði Eitt flóknasta niðurrifsverkefni Íslandssögunnar Quang Lé stofnar flutningafyrirtæki Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum ESB leggur á nýtt gjald Stenst ekki skoðun Deila um hvort kæra eigi sendiboða sem benti á öryggisveikleika „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Loka

Share this article