Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Tilkynnt um tvær stórfelldar líkamsárásir í Reykjavík

  • What: Four people arrested in Reykjavík for two suspected major body assaults
  • Impact: Local police investigating incidents in the capital area
Read Full Article →

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fjóra einstaklinga í dag vegna gruns um tvær stórfelldar líkamsárásir. Lögregla rannsakar bæði atvik, en þau eru talin óskyld. Þetta staðfestir Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðarlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Fram kemur í tilkynningu að lögreglan hafi sinnt útkalli í póstnúmeri 105 í dag vegna stórfelldrar líkamsárásar sem þar átti sér stað. Þrír eru grunaðir og málið í rannsókn. Þá barst lögreglustöð 4 einnig tilkynning um slagsmál þar sem einn var handtekinn grunaður um stórfellda líkamsárás. Lögreglustöðin sinnir verkefnum í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi, Norðlingaholti, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi og á Kjalarnesi. Við handtökuna naut lögreglan aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra. Einnig voru drónar notaðir með góðum árangri, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu.

Share this article