Íranski byltingarvörðurinn sagði í kvöld að Íransher hefði svarað árásum Bandaríkjanna með því að gera árásir á bandarísk skotmörk við Persaflóa. „Ef árásir endurtaka sig þá svörum við með kraftmeiri hætti en nú,“ hafa íranskir ríkismiðlar eftir byltingarverðinum. Segir Írana geta tekið upp símann í stað þess að gera árásir JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, segir öllum árásum Írana verða svarað af hörku. Ríkin hafi skrifað undir viljayfirlýsingu um friðarsamkomulag. Ef Íranar séu ósáttir við innleiðingu viljayfirlýsingarinnar þá geti þeir tekið upp símann í stað þess að gera árásir. „Ofbeldi verður svarað með ofbeldi,“ segir Vance í færslu á samfélagsmiðlinum X . Fyrr í kvöld gerði Bandaríkjaher loftárásir á geymslusvæði fyrir flugskeyti og dróna auk strandratsjárstöðva í Íran. Stjórnvöld í Washington segja árásirnar svar við árás Írana á flutningaskip í Hormússundi. Íranar segja sæfarendur þurfa leyfi fyrir siglingum um Hormússund Árásirnar hafa vakið upp spurningar um hvort það takist að halda Hormússundi opnu nú þegar ríkin tvö eiga í viðræðum um varanlegan frið sín á milli. Íranski byltingarvörðurinn segir vopnahléssamkomulag ríkjanna færa Írönum völd yfir skipaflutningum um sundið. Þarlend stjórnvöld hafa varað sæfarendur við því að sigla um sundið án leyfis. Bandarísk stjórnvöld líta málið öðrum augum og segja ríkin hafa samið um að Íran opnaði Hormússund og að Bandaríkin afléttu herkví sinni við Íransstrendur.
This article describes an escalating kinetic conflict between Iran and the United States, involving retaliatory military strikes including missile and drone attacks on strategic targets near the Persian Gulf and the Strait of Hormuz. The primary threat vector is physical and cyber-physical attacks on maritime infrastructure and military assets, which risks disrupting critical shipping lanes. While diplomatic negotiations for a permanent peace agreement are mentioned, the immediate operational concern is the heightened risk to vessels and regional stability from these tit-for-tat military actions.