Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Greiddi tvo milljarða í skatt

Read Full Article →

Karl þriðji varð nýlega fyrsti ríkjandi breski konungurinn til að opinbera hversu mikið hann greiddi í skatt. Á vef BBC segir að Karl hafi greitt 12,9 milljónir punda, eða um tvo milljarða króna, í skatt á skattaárinu 2024-2025. Til samanburðar greiddi Karl 11,7 milljónir punda árið á undan. Á sama tímabili greiddi Vilhjálmur prins 7,76 milljónir punda, samanborið við 8,34 milljónir punda árið áður. Samanlagðar skattgreiðslur frá bæði Karli og Vilhjálmi til HM Revenue and Customs nema alls yfir 50 milljónum punda síðan Karl tók við krúnunni árið 2022. Sjá einnig Húfukostnaður hjá vörðum konungsfjölskyldunnar Skýrslan segir jafnframt að Sovereign Grant, helsta opinbera fjárframlag til konungsfjölskyldunnar, muni rúmlega tvöfaldast milli 2027 og 2028 og nemur 99,9 milljónum punda. Opinber birting á skattaframtali konungsfjölskyldunnar kemur einnig í kjölfar þrýstings vegna deilna sem tengjast fyrrum hertoga af Jórvík, Andrew. Þingmenn höfðu til að mynda gagnrýnt skort á reikningsskilum yfir notkun opinbers fjár og vildi Buckingham-höll taka fyrsta skrefið til að stuðla að víðtækari skilningi á reikningsskilum fjölskyldunnar.

Share this article