Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Pólskir heimkomumenn hvattir til að sækja bætur

Read Full Article →

Pólsk stjórnvöld hafa birt leiðbeiningar fyrir ríkisborgara sem hyggjast flytja frá Bretlandi aftur til Póllands, um hvernig þeir geti sótt breskar atvinnuleysisbætur áður en þeir yfirgefa landið og fengið þær greiddar áfram eftir heimkomu. Frá málinu greinir Telegraph . Á vefsíðunni Powroty, sem er rekin af pólskum stjórnvöldum fyrir Pólverja búsetta erlendis, er bent á að breskar atvinnuleysisbætur séu hærri en sambærilegar greiðslur í Póllandi. Þar er jafnframt tekið fram að mikilvægt sé að sækja um bætur áður en flutt er frá Bretlandi, enda sé ekki unnt að hefja umsóknarferli eftir að heim er komið. Á heimasíðunni er einnig að finna leiðbeiningar fyrir brottflutning Pólverja frá Íslandi. Ekki virðist þó vera sérstaklega fjallað um hérlent almannatryggingakerfi, eins og í tilfelli Bretlands. Samkvæmt samkomulagi Breta og Evrópusambandsins í kjölfar Brexit, geta þeir Evrópubúar sem fengu fasta búsetu í Bretlandi fyrir árslok 2020 flutt tilteknar atvinnuleysisbætur með sér til annars Evrópusambandsríkis í allt að þrjá mánuði á meðan þeir leita sér að vinnu. Breskir stjórnmálamenn benda á vankanta á kerfinu Leiðbeiningarnar hafa vakið hörð viðbrögð meðal breskra stjórnmálamanna. Hafa sumir beinlínis sakað pólsk stjórnvöld um að hvetja fólk til að nýta sér breska velferðarkerfið með ósanngjörnum hætti, og segja fyrirkomulagið merki um veikleika í bresku bótakerfi. Talsmaður breskra stjórnvalda benti hins vegar á að um væri að ræða gagnkvæmt fyrirkomulag sem samið hefði verið um í tengslum við útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Hann sagði jafnframt að aðeins örfáir einstaklingar utan Bretlands nýttu sér atvinnuleysisbætur samkvæmt þessum reglum. Bótaréttur byggist á því að viðkomandi hafi áður greitt nægileg tryggingagjöld og skatta í Bretlandi. Greiðslurnar eru því bundnar við einstaklinga sem hafa starfað þar og aflað sér réttinda innan kerfisins. Pólsk stjórnvöld hafna því að atvinnuleysisbætur séu meginástæða þess að fólk flytji heim. Þau segja ákvörðun jafnan byggjast á sterkri efnahagsþróun í Póllandi, auknum atvinnutækifærum, fjölskyldutengslum og miklu öryggi í landinu. Á undanförnum árum hafa stjórnvöld í Varsjá gripið til ýmissa aðgerða til að hvetja Pólverja erlendis til að snúa aftur heim, meðal annars með sérstökum skattfríðindum fyrir heimflytjendur.

Share this article