- What: Sensitive data from an ongoing investigation was leaked online
- Impact: Individuals involved in the investigation may be at risk
Innlent | Morgunblaðið | 26.6.2026 | 10:33 Gögn í virkri rannsókn birt á netinu Nöfn einstaklinganna mátti sjá mjög greinilega í myndbandinu og þar var einnig málsnúmer sýnilegt. Skjáskot/Youtube Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Nöfn einstaklinga sem tengjast virkri rannsókn héraðssaksóknara birtust í kynningarmyndbandi þar sem fjallað var um störf embættisins. Trúnaður ríkir um gögnin. Ísraelska tæknifyrirtækið Cellebrite stóð fyrir gerð kynningarmyndbandsins en það var birt á Youtube og svo endurbirt með frétt Vísis á dögunum. Myndbandinu hefur nú skyndilega verið eytt. „Það var klippa þarna í myndbandinu þar sem sést á skjá og þegar við urðum þess áskynja höfðum við strax samband við Cellebrite og sögðum að það hefði verið sérstaklega brýnt fyrir öllum þeim sem komu að þessu að þetta mætti alls ekki gerast. Við höfðum því bara strax samband og sögðum þeim að þetta væri ekki líðandi,“ segir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari við Morgunblaðið. Um var að ræða kynningarmyndband þar sem fjallað var um hvernig embættið nýtir sér stafræn sönnunargögn við rannsókn mála. Frétt af mbl.is Sýndu óvart nöfn Nöfn fimm einstaklinga birt Nöfn fimm einstaklinga mátti sjá á tölvuskjánum í myndbandinu, þar sem gert hafði verið kort sem tengdi einstaklingana saman. Auk þess mátti þar sjá málsnúmer sem gaf til kynna að um væri að ræða rannsókn sem hefði hafist hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í fyrra. Um er að ræða nöfn á tveimur konum sem bera íslensk nöfn og þremur karlmönnum sem bera erlend nöfn. Nöfnin eru sem fyrr segir vel greinanleg ásamt málsnúmeri. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er um að ræða rannsókn á máli sem tengist kerfisvillu hjá Reiknistofu bankanna sem einstaklingarnir eru grunaðir um að hafa misnotað. Ólafur Þór vildi ekki staðfesta þetta. Nokkur mál hafa komið upp að undanförnu þar sem einstaklingar hafa svikið út fé vegna slíkra kerfisvillna en meðal annars kom upp í október að um 400 milljónir króna hefðu verið sviknar út úr Landsbankanum og Arion banka með misnotkun á slíkum veikleika hjá Reiknistofunni. Þá var rúmenskur karlmaður handtekinn í heimalandi sínu í lok apríl og framseldur til Íslands vegna gruns um að hann hefði svikið 160 milljónir króna út úr Arion banka. Hafa kerfisvillurnar falist í því að einstaklingar gátu millifært háar upphæðir af eigin reikningum án þess að innistæða væri fyrir fjárhæðunum. Hefði átt að „blörra“ nöfnin „Í fyrsta lagi átti aldrei að sjást á skjáinn í myndbandinu. Ef það var verið að taka myndir þá hefði átt að „blörra“ allt sem væri einhver möguleiki á að persónugreina,“ segir héraðssaksóknari. Segir Ólafur að ekki hafi liðið langur tími frá því að myndbandið var birt og þar til mistökin uppgötvuðust. Eins og áður segir hafi svo strax verið haft samband við ísraelska fyrirtækið og úrbóta krafist. Ljóst er þó að myndbandið var í birtingu á netinu í einhverja daga. Ætti ekki að spilla rannsókn Þrátt fyrir að þessar viðkvæmu upplýsingar tengdar rannsókninni hafi verið birtar öllum telur Ólafur ekki líkur á að spillt hafi verið fyrir rannsókn málsins. „Ég sé það nú ekki fyrir mér. Þetta er ekki svona mál þar sem eitthvert svona „moment of surprise“ er til staðar.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ríkið þarf ekki að græða bætur vegna sóttkvíar Myndskeið: Suður-Afríka kom öllum á óvart Beint flug eflir viðskipti ríkjanna Gögn í virkri rannsókn birt á netinu „Þetta var versta vika lífs míns“ Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Neyðarástand Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar vegna loftslagsmála er slæmt meðal Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Einfalda og nútímavæða byggingarreglugerð Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla „Það eru ekki allir að róa í sömu átt“ Myndir: Jarðskjálftinn í Venesúela Mest lesið Í gær Í vikunni Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum „Þetta er stórhættulegt“ Borgin viðurkennir veruleg mistök Hildur heitir að standa við stóru orðin Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Tuttugu og tveir sóttu um starfið Kaffistofa Samhjálpar í uppnámi Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Ríkið þarf ekki að græða bætur vegna sóttkvíar Myndskeið: Suður-Afríka kom öllum á óvart Beint flug eflir viðskipti ríkjanna Gögn í virkri rannsókn birt á netinu „Þetta var versta vika lífs míns“ Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Neyðarástand Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar vegna loftslagsmála er slæmt meðal Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Umfangsmiklar breytingar: 18 störf lögð niður Beint flug eflir viðskipti ríkjanna 235 látnir og hátt í 40 þúsund er saknað Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Mest lesið Í gær Í vikunni Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum „Þetta er stórhættulegt“ Borgin viðurkennir veruleg mistök Hildur heitir að standa við stóru orðin Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Tuttugu og tveir sóttu um starfið Kaffistofa Samhjálpar í uppnámi Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku